Jæja, hvar á ég að byrja? Ég gæti í alvörunni skrifað heila bók um þessa mögnuðu og unaðslega köku. En þessi Snickershrákaka er algjörlega málið um jólin eða við hvaða sparitilefni sem er. Ég get alveg lofað þér því að hún mun slá í gegn og það gæti líka alveg farið þannig að þú munt ekki tíma að deila henni með neinum. Ég er ótrúlega stollt af þessari uppskrift og er kakan nákvæmlega eins og ég hafði hugsað mér. En…
Eitt af því kröftugasta sem við getum innleitt í fæðuna okkar er fullt af grænu laufgrænmeti eins og t.d. grænkáli, spínati, brokkolí og blaðkáli (bok choy). Grænt laufgrænmeti er stútfullt af heilsueflandi virkum efnum og mikilvægt að huga að því að borða vel af því. En það inniheldur lítið af kaloríum og fitu en er stútfullt af andoxunarefnum, trefjum og vítamínum. Það er best ef maður gefur sér tíma í að tyggja grænt laufgrænmeti og hefur það alltaf með mat.…
Nú þegar að haustið skellur á er gott að vera skipulagður í mataræðinu og eiga ágætis birgðir af millimálum í frystinum. Eitt sem að ég elska að eiga í frystinum eru einhverjar góðar orkukúlur. Það er ómetanlegt að grípa í þær þegar að maður er á hraðferð eða bara til að njóta í rólegheitum. En hugmyndin af þessum orkukúlum kom þegar að ég var að gera botn á hráköku og vá hvað þær heppnuðust vel. Mig langar að eiga fullan…
Það er algengur misskilningur að þeir sem að séu á grænkerafæði séu að glíma við prótínskort. Sjálf er ég ekki að reikna út prótíninntöku mína yfir daginn og er ég við mjög góða heilsu. En mataræði mitt er aðallega uppbyggt á grænmeti, ávöxtum, baunum og hnetum. Ef eitthvað er, hefur fæða mín sennilega aldrei innihaldið jafn mikið magn af prótíni og öðrum lífsnauðsynlegum næringarefnum. Það sem mér finnst gott að einblína á er að borða fjölbreytta fæðu, þ.e.a.s. að borða…
Nú er íslenskt grænkál mikið í búðum og er meira að segja lítið mál að rækta það sjálfur ef maður hefur landsvæði til þess. En það er t.d. gott í þeytinginn, í salatið, á pönnu með grænmeti eða sem snakk. Þegar að grænkálið er orðið hálfslappt í ísskápnum er kjörið að dekra aðeins við það og breyta því í gómsætt snakk sem slær alltaf í gegn. Það er hægt að leika sér endalaust með grænkálssnakk og setja saman skemmtileg brögð.…
Mig dreymir um að eiga mitt eigið gróðurhús þar sem ég gæti m.a. ræktað jarðaber. En íslensk jarðaber eru bara eitthvað annað á bragðið. Þau eru svo góð og algjör lúxusvara. Við megum vera endalaust þakklát fyrir að þau séu framleidd hér á landi. Það skemmir svo að sjálfsögðu ekki fyrir að vita að það er notað íslenskt vatn til að rækta þau, það er ekki úðað eiturefnum á þau til þess að þau endist sem lengst og eru ekki…
Sama hvaða árstími er, þá elska ég að fara út í náttúruna í ævintýri með syni mínum. Þá er mjög gott að hafa nesti með í för og er einstaklega hentugt að taka með gómsæta súrdeigssamloku með fullt af grænmeti á. Maður er enga stund að skella því sem maður á ofan á svona samloku en ég ætla að deila með þér hvað ég setti á samlokurnar okkar um daginn en þær komu svo vel út að ég get ekki…
Það er eitthvað svo heillandi við það að útbúa heilsusamlega og bragðgóða máltíð undir berum himni í fallegri náttúru. Þegar ég fer í útilegur á sumrin þá er það fyrsta sem ég hugsa um er hvaða gúmmelaði er hægt að gæða sér á í útilegunni. Hvert ég er að fara og hvernig veðrið er bara aukatriði (djók – samt ekki) En það þarf samt alls ekki að vera flókið né fyrirhafnarmikið að útbúa skemmtilegar máltíðir í útilegu. Þar er nefnilega…
Það er ennþá að koma mér á óvart hvað það er hægt að útbúa mikið af gúmmelaði á eigin máta úr flottu hráefni. En eftir að vegan magnum kom til landsins þá varð ég að finna út hvernig ég gæti gert mína eigin lúxus-íspinna. Þó að vegan magnum ísinn sé ekkert eðlilega góður (og ég tek komu hans til landsins fagnandi) að þá vil ég helst ekki vera að borða mikið af honum þar sem að hann inniheldur mikið af…
Sushi er alltaf hátt á vinsældarlistanum hjá mér og ef ég mætti ráða myndi ég borða það alla daga. En þegar að ég les á innihaldslýsingu á sushi á sushibökkunum er listinn ansi langur sem gerir það að verkum að ég fæ mér það ekki alla daga. Ég hef ekki lagt í það að búa það til sjálf heima en um daginn var ég með ótrúlega sterka löngun í sushi svo ég ákvað að útbúa svona einhverskonar sushiskál. Ég skil…










