Mín stærsta ástríða er að hvetja fólk til þess að sýna sér meiri mýkt og að hlúa betur að sér á heildrænan máta. Því að sá tími, orka og ást sem við gefum sjálfum okkur, er besta fjárfesting sem við gerum í lífinu. En til þess að geta gert það þarf að skoða grunninn; sambandið sem að þú átt við þig. Sannleikurinn er sá að ef þú ert ekki í tengingu við þig og finnst erfitt að vita hvað þú vilt, hvað þú þarft á að halda og hvernig þú getur stutt sem best við þig – þá er erfitt fyrir þig að blómstra til fulls í lífinu og upplifa eigin styrkleika.
Þetta námskeið er fyrir alla, óháð kyni. Það hjálpar þér að:
- Skilja mikilvægi þess að rækta samband þitt við þig.
- Læra hvernig þú getur ræktað samband þitt við þig með einföldum skrefum.
- Læra hvernig þú getur tengst þér og tilfinningum þínum dýpra á öruggan hátt.
- Læra hvernig þú getur sýnt þér meira sjálfsmildi og sjálfskærleik.
- Læra hvernig þú getur notið betur einveru þinnar.
- Læra hvernig þú getur orðið öruggari í sjálf-ri/um þér og minna háð öðrum.
- Læra hvernig þú getur tekist betur á við önnur sambönd.
- Vita betur hvað það er sem þig virkilega langar að gera í lífinu.
- Öðlast hugrekkið til að gera það sem þú vilt, óháð skoðunum annara.
- Öðlast sjálfstraustið til að vera örugg/ur í eigin skinni.
- Öðlast styrkinn til að setja þig meira í 1. sætið og þ.a.l. minnka streitu og álag í lífinu þínu.
Þetta netnámskeið inniheldur skotheld tól og fróðleik til að þú getir byrjað strax að eiga í dýpra, öruggara, nánara og kærleiksríkara sambandi við þig.
Fyrirkomulag námskeiðsins er einfalt:
Fróðleikur á myndbandaformi
Ég fer yfir það í fróðleiksmyndböndum af hverju það er svona eftirsóknavert að byggja upp þetta dýrmæta samband sem maður á við sjálfan sig og hvernig maður getur gert það. Næsta kafli opnast þegar að þú hefur lokið við þann fyrri.
Hugleiðslur sem hljóðskrár
Þú hleður niður upptökunni og getur hlustað á hana eins oft og þú vilt í símanum þínum.
Spurningaskjöl
Spurningar til þín til að kafa dýpra ofan í efni námskeiðsins og endurspeglað þig betur í því. Þessi skjöl átt þú bara fyrir þig.
Námskeiðið gerir þú á þínum hraða hvenær & hvar sem er í heiminum. Þú átt aðgang að því í ótakmarkaðan tíma <3
Sama hvort að þú átt í ástarsambandi með annari manneskju eða ekki – að þá er það samband þitt við þig sem leggur grunn að öðrum tengingum. Það allra mikilvægasta sem að þú getur gert fyrir þig og þitt líf er að þú lærir að sýna þér ást sjálf/ur, að þú getir gert allt sem þú þráir fyrir þig. Þegar að þú ert þín aðal ástaruppspretta þá er svo miklu skemmtilegra að vera í ástarsambandi því að þá ert þú ekki háð hinum aðilanum um ást. Þá getið þið frekar einblínt á það að njóta þess að lifa lífinu – þið bætið hvort annað upp og eruð fallegur plús við það fallega samband sem þið eigið við ykkur. Þá finnur þú fyrir styrkinum í sjálf-ri/um þér sem einstaklingur og að þú getir í rauninni allt á eigin fótum þó þú þiggir stuðning frá makanum þínum. Þú þorir að setja mörk í samböndum þínum við aðra, standa með þér og tjá þínar þarfir. Tenging þín við aðra verður þá fallegur og dýrmætur plús við þann fallega grunn sem þú hefur nært innra með þér. Plús – að þegar þú ert vel nærð/ur með sjálfum þér – þá velur þú svo miklu fallegri og nærandi sambönd inn í líf þitt, því þú virkilega veist virði þitt. Sambönd þín við aðra gjörbreytast á mjög jákvæðan hátt þegar að þú bætir samband þitt við þig.
Þú fjárfestir í sjálf-ri/um þér og námskeiðinu hér.