Sama hvort það sé heitt í veðri eða ekki, þá slá frostpinnar alltaf í gegn hjá litlum gullmolum. En þeir frostpinnar sem að maður kaupir út í búð innihalda mikið magn af sykri, aukaefnum og litla sem enga næringu. Því mæli ég eindregið með því að útbúa frostpinna á eigin máta í eldhúsinu heima og þá má barnið þitt þess vegna fá sér frostpinna í morgunmat – þvílíkur draumur! Ég hef alltaf verið skýr með það við fólkið í kringum…
Ég elska að næra mig á þann hátt sem að lætur mér líða vel. En það að borða hollt þarf alls ekki að vera bragðvont né óspennandi. Mikilvægt er að vera opin/n fyrir því að smakka eitthvað nýtt (jafnvel nokkrum sinnum) og þróa bragðlaukana sína áfram þegar maður er að innleiða meira af hollri fæðu í mataræðið sitt. Það er nefnilega ekkert svo langt síðan að ég sjálf borðaði bara fáeinar tegundir af t.d. grænmeti og jiminn hvað ég er…
Hvernig hljómar það fyrir þér að geta fengið þér ís í morgunmat? Í mínum huga er það draumi líkast þar sem að ég ELSKA ís! Ég tala nú ekki um þegar að sólin skín og heitt er í veðri; þá vill maður kunna að útbúa girnilegan ís. Það er nefnilega enginn vandi að útbúa sinn eigin ís í eldhúsinu heima á mjög einfaldan og skjótan máta. Að þessu sinni ætla ég að deila með þér uppskrift af ís með acaídufti.…
Pasta er eitt af því fyrsta sem ég lærði að matreiða í eldhúsinu heima og gerði ég mikið af því, kannski aðeins of mikið. Það var oftast gert með skinku, rjómaosti, smurostum og örlitlu grænmeti. Í dag er staðan aðeins önnur þar sem að ég hef alveg hætt að neyta dýraafurða og hvítt pasta fer alls ekki vel í mig. Það var því smá skellur þegar að ég þurfti að læra að gera pasta á mjólkurlausan & glútenlausan máta á…
Ég veit ekki af hverju, en ég tengi ferskt og gott salat alltaf við sumartímann. En þegar að heitara er í veðri þá hef ég meiri löngun í salat heldur en yfir vetrartímann, ég er meira í súpunum þá. Í tilefni sumardagsins fyrsta þá langaði mig að deila með ykkur skemmtilegri uppskrift að salati sem að er bæði djúsí og bragðgott. Það þarf nefnilega alls ekki að vera leiðilegt að borða salat, það er vel hægt að gera það á…
Þessi ómótstæðilega kaka er algjör bomba! Ég er ótrúlega ánægð með hana en bæði áferð og bragð eru upp á 10 þó ég segi sjálf frá. Það passar því vel að birta uppskrift af svona bombu þegar að páskarnir eru handan við hornið og mun hún una sér vel í hvaða páskasamkomu sem er. En þetta er frekar stór uppskrift en hún geymist vel í frysti svo ég er ekkert endilega viss um að ég myndi ráðleggja þér að minnka…
Ég ELSKA hvað það er hægt að útbúa mikið af gúmmelaði úr hráefnum sem að náttúran færir okkur. En það hefur verið mikið bananaæði í nokkur ár á meðal margra og það er ekki af ástæðulausu. Bananar gera allt gott en það sem er mesta snilldin við þá er að þegar að maður frystir þá og skellir þeim síðan í matvinnsluvél/blandara – þá verður til ís. Mjög loftkenndur og silkimjúkur ís. Ég og sonur minn (2 ára) erum að leika…
Það er fátt skemmtilegra en að skella í góða hráköku sem að er bæði næringarrík og bragðgóð. En uppskriftin af þessari fallegu hráköku sem ég ætla að deila með þér núna er afskaplega einföld og þægileg í framkvæmd. Þessi dásamlega hindberjasæla er skemmtilega fersk á bragðið og mun bókstaflega leika við bragðlaukana þína. Það er ekki eftir neinu að bíða en að við vindum okkur í verkið! Eins og alltaf þá mæli ég með að þú lesir aðferðarlýsinguna svo allt fari…
Ég elska að útbúa mat í stórum skömmtum og nýta afganganna á skemmtilegan hátt. Oftar en ekki koma afgangarnir sér mjög vel þegar að maður á annríkt eða þarf að vera á ferðinni, þá er maður kominn með auðvelt nesti án fyrirhafnar. Afgangar þurfa nefnilega alls ekki að vera eitthvað óspennandi, mér finnst þeir oftast miklu betri en upphaflega máltíðin. Það er svo auðvelt að dekra við þá og setja þá á allt annað stig. Eitt sem að ég geri…
Kvöldmatur á mínu heimili er í flestum tilfellum mjög fljótlegur og þægilegur. Uppskriftin sem ég ætla að deila með þér núna er einmitt eitthvað sem ég geri mjög oft í kvöldmatinn og fær hún alltaf góðar undirtektir. Það tekur enga stund að útbúa hana og elska ég að gera hana í stóru magni til þess að eiga afgang daginn eftir. Thailenskur hrísgrjónaréttur 1 bolli hýðishrýsgrjón + 2 bollar vatn 6 gulrætur 1/2 toppkál (má líka nota hvítkál) lítill laukur 1-2…










