Með auknum hita og meiri sól þá verð ég að deila með ykkur uppskrift af sumarlegum sólarþeytingi sem að ég er farin að gera reglulega oft heima. Bæði á gráum dögum sem og sólardögum; þá færir þessi sumarlegi þeytingur mér aukna sól í hjarta. Það er svo nærandi fyrir bæði líkama og sál að útbúa sér næringarríka og fallega fæðu sem að lætur mann bókstaflega dansa um af gleði. Heilnæm fæða hefur nefnilega þann töfrandi mátt að láta okkur líða…
Uppáhaldsmaturinn hjá syni mínum er Pad Thai og eftir óhóflega margar heimsóknir á veitingastaðinn Mai Thai var komin tími á að mastera sjálf að gera gott Pad Thai í eldhúsinu heima. Eftir þá masteringu get ég með sanni sagt að það er ótrúlega einfalt að gera Pad Thai. Ég ætla þvíað deila með þér hvernig ég bjó það til og vona að þú njótir góðs af því. Það er mjög sniðugt að lauma eins mikið af grænmeti með því til…
Ég elska að leika mér að útbúa hrákökur í eldhúsinu og fá útrás fyrir sköpunarkraftinum í leiðinni. Það er hægt að leika sér endalaust með hrákökur og láta allskonar skemmtilegar bragðtegundir koma saman. Eins er mjög skemmtilegt að leika sér að skreyta þær og skemmtilegast af öllu er að deila sköpun sinni með öðrum. Því ætla ég að deila með þér uppskrift af hráköku sem á eftir að slá í gegn um páskana. En byrjum á byrjuninni. Hvað er hrákaka?…
Þá er loksins komið að því að gefa þessum mangóís þann heiður sem hann á skilið; sérfærslu hér á blogginu. En uppskriftina birti ég upphaflega á instagram og hefur hún fengið mjög mikla athygli. Allir virðast elska þennan ís sem að prufa að útbúa hann, enda er þetta mjög góður og hollur ís sem ég sjálf fæ mér nánast daglega. Ég elska hvað hann kætir mig og bætir; ég verð svo full af bæði orku og lífsgleði. Það er mjög…
Mataræðið mitt hefur einkennst af mjög miklum einfaldleika upp á síðkastið en á sama tíma gert mjög mikið fyrir bragðlaukana mína og almenna líðan. Ég er nefnilega alltaf að sjá það betur & betur að það að borða holla og góða fæðu þarf alls ekki að vera neitt flókið. Það eina sem skiptir máli er að raða saman hráefnum sem að öll eiga það sameiginlegt að leika við bragðlaukana þína og láta þér líða virkilega vel. Ég ætla því að…
Að mínu mati er mikilvægt að setja góðan tón í daginn með heilsusamlegum og girnilegum morgunmat. Það er mun líklegra að maður borði hollara yfir daginn þegar að maður byrjar morguninn á heilsusamlegan máta. En það fer þó alveg eftir einstaklingnum hvenær dagsins maður kýs að fá sér fyrst að borða. Sjálfri finnst mér best að byrja daginn rólega með vatni og fá mér ekki að borða fyrr en kannski 2-3 klst eftir að ég vakna. En hvernig getur maður…
Að þessu sinni ætla ég að deila með þér uppskrift af ljúffengri bláberjaböku sem að bæði bætir og kætir. Þessi baka er ótrúlega auðveld í framkvæmd og bragðast stórfenglega þó ég segi sjálf frá. Hún er glútenlaus, laus við unninn sykur og er að sjálfsögðu einnig vegan <3 Ef það eru börn á heimilinu, þá er upplagt að gera þessa köku með hjálp þeirra því að það eina sem þarf að gera er að skella nokkrum hráefnum í matvinnsluvélina. Flestir…
Þessi dásamlega tælenska súpa er algjört sælgæti og er ég búin að gera hana vandræðalega oft núna á mjög stuttum tíma. Ég varð því að skrifa niður uppskrift og deila með þér svo þú getur notið góðs af þessari vermandi og kraftmiklu súpu. Ég var alls ekki að finna upp þessa súpu en hún er betur þekkt sem Tom Kha Gai. Þá er hún með kjúklingi en ,,Gai“ þýðir kjúklingur. Einnig inniheldur hún alltaf galangal rót og límónulauf sem hvoru…
Það er alltaf að koma mér meira og meira á óvart hversu auðvelt það er að baka smákökur án þess að nota hvítt hveiti, hvítan sykur og smjör. Um leið og maður kemst upp á lagið með að baka á þennan máta þá er þetta ekkert mál. Það mætti segja að það opnist fyrir manni nýjar dyr og möguleikarnir verða endalausir. Ég fékk þá hugmynd um daginn að útbúa engifersmákökur sem að eru vegan, glútenlausar og innihalda ekki hvítan sykur.…
Risotto er eitthvað sem ég hélt að væri fáranlega flókið og erfitt að útbúa. Það óx mér mikið í augum að prufa að gera það en svo er það bara ekkert mál! Það besta er auðvitað að það er fáranlega gott og algjört gúmmelaði. Þetta er eitthvað sem ég mun klárlega hafa í forrétt á aðfangadag eða jafnvel bara í aðalrétt á jóladag. Risotto er algjört gúmmelaði og fær það ekkert að finna fyrir því að það sé vegan. Það…










