Ég á engin orð yfir því hversu góðar þessar súkkulaðitrufflur eru. Þær hafa bókstaflega horfið í hvert skipti sem ég bý þær til þó ég sé alltaf að reyna að búa til stóran skammt með von um að hann verði til í einhvern tíma. En uppskriftinni af þessum trufflum var bókstaflega plantað inn í hausinn á mér og þurfti ég að fara strax í eldhúsið og prufa. Trufflurnar komu fullkomlega út í fyrstu tilraun – það er sko langt frá…
Ég elska að borða litríkan mat og finnst mér salöt vera snilldar leið til að búa til litríkan disk. En það þarf alls ekki mikla fyrirhöfn til að útbúa fallegt og bragðgott salat. Það er upplagt til að hafa það í kvöldmat í miðri viku þegar að maður á annríkt og jafnvel grípa afganginn af því með sér í nesti næsta dag. Salat er nefnilega frábær leið til að borða fæðu sem er stútfull af næringarefnum og vítamínum sem gerir…
Það er nú ekki hægt að bjóða desember velkomin án þess að eiga góðar súkkulaðibitakökur. Ég elska að fá mér þessar súkkulaðibitakökur með ískaldri möndlumjólk yfir góðri jólamynd. En ég verð alltaf að horfa á The Holiday og Jólaósk Önnu Bellu fyrir hver jól, það eru klárlega mínar uppáhalds jólamyndir. Þessar smákökur eru vegan, glútenlausar og án unnar sætu. En það þýðir þó samt ekki að maður eigi að missa sig og borða þær í öll mál alla daga vikunnar.…
Ég gæti skrifað heila bók um það hversu mikið ég elska sörur og hversu stóran part þær spila í jólastemminguna hjá mér. En ég er hæstánægð með útkomuna á sörunum í ár og eru þær dásamlegar á bragðið. Þessi uppskrift er laus við unninn sykur ásamt því að vera glútenlaus og vegan. Það skiptir mig mjög miklu máli að geta notið alls konar góðgætis þrátt fyrir að ég sniðgangi margt í fæðunni. Ég legg mikið á mig að útbúa uppskriftir…
Snilldin við hrákökur Hrákökur eru í miklu uppáhaldi hjá mér því að það er hægt að leika sér endalaust með þær. Það er líka mjög fljótlegt og þægilegt að útbúa þær. En það sem að mér finnst best við þær er að þær geymast í frysti en þeir sem hafa lesið nokkrar uppskriftir frá mér vita að ég er aldrei glaðari en þegar ég á fullt af góðgæti til í frystinum. Það er virkilega sniðugt að eiga hráköku í frystinum…
Ég er mjög kröfuhörð á snyrtivörur og ber ekkert á mig nema mjög hreinar & gæðamiklar snyrtivörur. Líkt og á matvörum les ég á innihaldslýsinguna á snyrtivörum og vil ég sjá þar fá innihaldsefni sem að ég þekki. En allt sem að við látum á húðina, okkar stærsta líffæri, fer beint inn í blóðrásina sem að hefur að sjálfsögðu áhrif á líkamsstarfsemina okkar. Þegar að ég frétti af íslenska snyrtivörumerkinu rå oils varð ég því eðlilega mjög spennt og er ég…
Ég elska að tilraunast í eldhúsinu og finna leiðir til að borða allt það sem mig langar í. Í þetta sinn langaði mig ofboðslega í gott jógúrt til að geta átt í morgunmat. Við tók mikil rannsóknarvinna á internetinu til að finna uppskrift af góðu jógúrti sem væri laust við unna sætu, og að sjálfsögðu mjólkurvörur. En jógúrtheimurinn tók ekki vel á móti mér í fyrstu þar sem að það er margt sem spilar inn í hið fullkomna jógúrt. Það…
Hummus er eitt það besta sem að þú getur átt í ísskápnum þínum til að gæða þér á milli mála. Ekki er verra að eiga nokkrar krukkur í frystinum líka til að taka út þegar að það er mikið að gera hjá manni og lítill tími til að útbúa sér hummus. Ekki það að það taki mikinn tíma að útbúa sér hummus, það er leikur einn og finnst mér það í rauninni bara mjög gaman. En það besta við hummus…
Þessi súpa hefur slegið í gegn hjá öllum þeim sem hafa smakkað hana enda er hún fáranlega góð. Það vita kannski ekki allir hvað jarðskokkar eru og er í rauninni mjög stutt síðan að kærasti minn, Snorri, kynnti mig fyrir þeim. Þetta er grænmeti sem er með svipaðri áferð og kartöflur en bragðast samt allt öðruvísi. Við höfum fundið mjög fallega jarðskokka í frú Laugu og einnig fundið þá í Krónunni. Snorri á heiðurinn af þessari frábæru uppskrift en hann…
Það er svo ótrúlega lítið mál að gera sitt eigið granóla og finnst mér það alltaf miklu betra en það sem maður kaupir út í búð. Ég vakna alltaf hoppandi kát þegar ég á heimagert granóla. Mér finnst gott að gera vel við mig og byrja daginn á því að skella því í skál með heimagerðu kókosjógúrti eða góðum berjaþeytingi. Ég reyni að nota granólað sem algjört spari um helgar en það vill þó stundum fara þannig að það sé borðað…









