Við gerum okkur kannski ekki grein fyrir því, en stundum eyðum við dýrmætum tíma lífsins á biðstofunni. Við bíðum eftir deginum þar sem að við munum verða tilbúin. Við bíðum eftir deginum þar sem að við verðum örugg með okkur. Við bíðum eftir deginum þar sem að við verðum laus við ótta. Og við höldum að þegar að þessi dagur mun renna upp, ÞÁ munum við sko fara og gera allt það sem okkur hefur alltaf langað til þess að…
Dömur mínar og herrar, besti dagur ársins er að renna í garð. Bolludagurinn er mér mjög heilagur og hef ég staðið í ströngu í eldhúsinu síðustu daga til þess að búa til þessa vatnsdeigsbolluuppskrift. Í fyrra, þegar að ég stóð í sömu tilraunum, hélt ég að ég væri komin með fullkomna uppskrift og þyrfti ekki að standa í þessu aftur en síðan þá hef ég hætt að borða egg og þurfti ég því núna að finna út hvernig ég gæti…
Ég elska að deila með ykkur einföldum og bragðgóðum uppskriftum. Þó að ég elski að borða hollan mat þá nenni ég ekki alltaf að eyða miklum tíma í eldhúsinu þó að stundum sé ég í stuði fyrir það. En það koma stundum dagar þar sem að ég nenni ekki að útbúa flókna máltíð og vil geta skellt í einfalda og holla máltíð. Að þessu sinni ætla ég því að deila með þér gómsætri rauðrófuskál sem að bragðast ekki bara eins…
Sama hvort að þú sért vegan eða sniðgangir mjólkurvörur þá held ég að flestir sem að hætta að borða mjólkurvörur eigi það sameiginlegt að sakna ostsins mikið. En það var allavega þannig í mínu tilfelli. Ég var lengi alltaf að stelast af og til í ost þrátt fyrir að vera búin að taka allar aðrar mjólkurvörur út. En ég hef loksins hætt því og er lystin fyrir hefðbundnum osti horfin. Þrátt fyrir að núna sé svo miklu meira úrval af…
Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég er langt frá því að vera að finna upp hjólið með því að birta uppskrift af túrmeriklatte. En það er mikið í uppáhaldi hjá mér og finnst mér það gera mér gott. Mér finnst það t.d. virka vel þegar að ég er með einhver kvefeinkenni og svo finnst mér það bara svo ofboðslega gott að ég fæ mér þetta oft þó að það sé ekkert einhvað sérstakt að angra mig. Í…
Það er svo heimilislegt að fá góðan bökunarilm á heimilið og alltaf gaman að gæða sér á heimabökuðu brauði. Að þessu sinni útbjó ég bananabrauð sem að kom ótrúlega skemmtilega út. En brauðið er vegan ásamt því að vera laust við unna sætu og er glútenlaust. Ég elska áferðina á því, en brauðið er frekar klesst og alls ekki þurrt. Ég elska að eiga til gott brauð og er það mitt uppáhalds millimál. Svona brauð er alltaf best fyrstu 3 dagana eftir…
Ég er alltaf mjög glöð þegar að ég á nóg af millimálum í skápunum hjá mér, þess vegna tek ég mig oft til og undirbý helling í eldhúsinu til að eiga fyrir komandi viku. Þetta bragðgóða hrökkkex er algjör snilld til að eiga t.d. með uppáhalds hummusnum manns eða bara hverju sem er í rauninni. Ég á ekki allan heiður að uppskriftinni en upprunalega uppskriftin kemur frá blogginu minimalistbaker.com. Þar er mjög margt sniðugt að skoða og sérstaklega mikið af glútenlausum…
Þegar ég var yngri píndi ég í mig möndugrautinn ef að mandlan skyldi vera í skálinni minni. Ég lagði mig meira að segja alla fram að leita að möndlunni í skálinni og ef að einhver var komin með möndluna þá leyfði ég restinni af grautnum. En eftir að ég fékk mjólkuróþol þá stalst ég til að smakka möndlugraut og fannst hann fáranlega góður, sem er mjög fyndið. Þess vegna ákvað ég að gera mjólkurlausa útgáfu til að njóta í ár.…
Þegar að maður sniðgengur mjólkurvörur í mataræðinu þá er margt sem að maður saknar eins og t.d. að geta fengið sér þeyttan rjóma. Ég hef lengi verið að reyna finna út úr því hvernig ég geri góðan kókosrjóma því að hér áður fyrr var ég algjör rjómaunnandi. Það er svo kærkomið fyrir þá sem eru t.d. með mjólkuróþol að geta útbúið sér góðan kókosrjóma en það opnar heilmargar dyr fyrir manni í mataræðinu. Kókosrjóminn er dásamlegur út á heitt súkkulaði, með…
Ég hef aldrei það sama í eftirrétt um jólin heldur er ég alltaf að prufa eitthvað nýtt. Að þessu sinni langaði mig í góða hráköku sem að væri algjör sælgætisbomba því að það er nú einu sinni jólin. Útkoman var vonum framar, en kakan bragðast dásamlega. Ef að ég gæti leyft þér að smakka í gegnum skjáinn myndi ég klárlega gera það, því þú verður að smakka þessa dásamlegu köku. Ég veit að hún mun slá í gegn hjá öllum þeim…









