Maður telur sér oft trú um að maður hafi ekki tíma til að framkvæma allt það sem manni langar að framkvæma í lífinu. En ég held að í flestum tilvikum sem að maður segist ekki hafa tíma, þá er maður að nota það sem afsökun á bæði sjálfan sig og aðra.
Afsökunin ,,ég hef ekki tíma’’ er orðin að einhverskonar frasa í samfélaginu okkar. Það hefur orðið samfélagslega samþykkt að nota þessa afsökun sem ástæðu fyrir að gera ekki eitthvað sem að maður er ekki í stuði fyrir að framkvæma. Þó að maður eigi alls ekki að gera allt sem maður er beðin um og maður þarf að geta sagt nei við aðra til að standa með sjálfum sér, þá er best að vera hreinskilin. Ekki koma með afsökun, sannleikurinn er alltaf bestur og það er best fyrir fólkið þitt að þú segir satt því að þá vita þau nákvæmlega hvar þau hafa þig. Ef að þú ert stöðugt að koma með afsakanir þá verður þú alltaf spurð/ur aftur&aftur að sama hlutnum.
En það sem að mig langar aðallega að tala um í þessum pistli er hvað maður er að skemma mikið fyrir sjálfum sér með því að vera stöðugt að nota þessa afsökun á sjálfan sig. Kannast þú við að segja við sjálfa/n þig að þú hafir ekki tíma til að gera það sem þig langar og þú veist að gerir þér gott? Eins og t.d. að borða hollan mat, hreyfa þig, vinna í sjálfum þér, elta draumana þína, sinna áhugamálum, hitta þá sem að þér líður vel í kringum og að hafa hreint í kringum þig?
Hvað er að hindra þig?
Ef að þér langar nógu mikið til að framkvæma eitthvað þá gerir þú það. En stundum langar manni að gera eitthvað en gerir það samt ekki og er þá oftast eitthvað sem að hindrar mann. Það getur t.d. verið ótti. Ótti við að mistakast, ótti við að gera sig að fífli, ótti við að stíga út fyrir þægindarrammannn eða ótti við að kunna ekki. En ég fer nánar í óttann og hvernig maður yfirstígur hann í þessari færslu hér. Einnig gæti það spilað inn í að þér finnist þú ekki vera nóg eða eiga skilið að gera eitthvað gott fyrir þig. En sannleikurinn er sá að þú átt allt gott skilið og þú ert þess virði að líða vel. Þegar að þú áttar þig á því þá munt þú sjá hversu mikilvægt er að setja heilsu þína og vellíðan í forgang.
Áttaðu þig á mikilvæginu
Ef að við þú segir t.d. við sjálfan þig að þú hafir ekki tíma fyrir eitthvað þá þýðir það ekkert annað en að það sé þér ekki nógu mikilvægt og þ.a.l. ekki í forgangi. Það þýðir að þú vilt frekar eyða tímanum í að gera eitthvað annað sem að þér finnst vera mikilvægara. Þetta ‘’annað’’ gæti jafnvel verið svefn, hanga í símanum eða að horfa á sjónvarpið. Til þess að koma því í framkvæmd sem að þér langar þá þarftu að sjá mikilvægi þess. Það gæti þýtt að þú þurfir að stíga út fyrir þægindarrammann, yfirstíga óttann, fara t.d. í fyrsta jógatímann og sjá hversu vel þér leið á eftir. Segðu við sjálfa/n þig að þú átt alltaf skilið að líða svona vel. Haltu fast í þessa vellíðan sem þú upplifðir eftir tímann og minntu þig á hana næst þegar að þú kemur með afsökunina að þú hafir ekki tíma. Að sama skapi ef að þú ert vön/vanur að segjast ekki hafa tíma til að elda hollan mat þá munt þú finna tíma fyrir það og setja það í forgang þegar að þú hefur uppgötvað hversu vel þér líður af hollri fæðu. Það eru margar leiðir til að útbúa hollan mat á stuttum tíma, þetta snýst um að finna lausnir og að hætta koma með afsakanir.
Skaðleg letibómull
Af öllum þeim afsökunum sem þú gætir komið með fyrir að gera ekki eitthvað er afsökunin að hafa ekki tíma ein af þeim sem stafar af leti. Það eiga þetta allir til, að nota þessa afsökun til þess að sleppa við að gera eitthvað sem að lætur þér líða vel þó að þú sért meðvit-uð/aður um mikilvægi þess. Og á mómentinu, þá trúir þú því kannski að þú sért í alvörunni að gera mjög gott fyrir sjálfan þig þegar að þú ákveður að hafa ekki tíma fyrir að gera eitthvað, að þú sért að hlífa þér og vernda þig. En þarna ert þú að setja þig í of mikla bómull sem að er ekki að gera þér neitt gott heldur að ýta undir leti þína.
Að hafa ekki tíma er ákvörðun
Til þess að geta framkvæmt það sem manni langar að gera fyrir sjálfan sig hvort sem það varðar drauma manns eða vellíðan þarf maður að skoða hvað er að stoppa mann. Slepptu takinu á afsökuninni að þú hafir ekki tíma. Ef það er eitthvað sem þig langar að gera, ekki láta það að þú sért upptekin standa í vegi fyrir því, þó að þú sért í alvörunni upptekin. Kafaðu dýpra og skoðaðu hvað er að stoppa þig. Er það ótti? Sérðu ekki mikilvægi þess? Ef það er eitthvað sem þig langar til að gera en finnur ekki tíma fyrir það, þá munt þú finna tíma fyrir það ef þú setur það í forgang. Endurskipuleggðu þig og settu það sem þig langar til að gera fyrir sjálfan þig í forgang. Gefðu þér tíma í að gera hluti sem þig langar til að framkvæma og leyfðu þér að gera þá. Þú ert við stýrið í þínu lífi og ræður sko alveg í hvað þú eyðir tímanum þínum í. Vertu því viss um að þú sért að eyða tímanum í eitthvað sem þér finnst skemmtilegt og það sem að lætur þér líða vel. Þú átt skilið að líða stórkostlega alla daga og það er enginn annar en þú sem getur séð til þess.
ef þú gefur þér ekki tíma fyrir að hugsa um sjálfan þig þá munt þú kannski ekki fá tíma til þess seinna – það gæti orðið of seint
ef þú ert stöðugt að segja við sjálfan þig að þú hafir ekki tíma, þá gæti það haft áhrif á það þegar að þér bíðst tækifæri til að láta draum þinn rætast, útaf þú ert búin að segja við undirmeðvitund þína 1000x að þú hafir ekki tíma
Ég hef oft staðið mig að því að telja sjálfri mér trú um að ég hafi ekki tíma til að gera það sem að mig innst inni langar til að gera og ég veit að gerir mér gott. Eins og t.d. bara það að fara í jóga. Ég er alltaf á leiðinni, en ég er bara svo ofboðslega upptekin, ég hef ekki tíma. En sannleikurinn er sá að þetta er bara afsökun hjá mér. Ástæðan fyrir því að ég kem með þessa afsökun stafar bæði af leti og ótta við eitthvað nýtt. Ég veit að það mun gera mér ofboðslega gott að fara í jóga og mér mun líða svo vel af því. En ég þarf bara að setja það í forgang, stíga út fyrir þægindarrammann og mæta í fyrsta tímann.
Ykkar einlæga,
Anna Guðný





No Comments