
Sítrónugrassúpa
- 125 g laukur
- 20 g lífr. ferskur engifer
- 2 tsk lífr. túrmerikkrydd frá Sonnentor
- 1 fennell (300g)
- 300g gulrætur
- 2 dós kókosmjólk frá biona
- 300 ml vatn
- 1 sítrónugras
- 1 msk tamarisósa
- 1 msk sítrónusafi frá bio zentrale
- 1 msk gróft salt
- Byrjaðu á því að skera grænmetið fallega niður.
- Steiktu síðan laukinn upp úr góðri olíu og bættu síðan restinni af innihaldsefnunum út í pottinn.
- Láttu þetta malla í u.þ.b. 40 mínútur á vægum hita eftir að suðan hefur komið upp. Passaðu bara að grænmetið verði ekki mauksoðið.
- Þessa súpu er tilvalið að græja kvöldið áður eða fyrr um daginn því að hún er alltaf betri daginn eftir, þá er bragðið af sítrónugrasinu orðið enn meira og súpan þ.a.l. orðin algjört sælgæti.






No Comments