Hummus er eitt það besta sem að þú getur átt í ísskápnum þínum til að gæða þér á milli mála. Ekki er verra að eiga nokkrar krukkur í frystinum líka til að taka út þegar að það er mikið að gera hjá manni og lítill tími til að útbúa sér hummus. Ekki það að það taki mikinn tíma að útbúa sér hummus, það er leikur einn og finnst mér það í rauninni bara mjög gaman. En það besta við hummus…
Það er svo ótrúlega lítið mál að gera sitt eigið granóla og finnst mér það alltaf miklu betra en það sem maður kaupir út í búð. Ég vakna alltaf hoppandi kát þegar ég á heimagert granóla. Mér finnst gott að gera vel við mig og byrja daginn á því að skella því í skál með heimagerðu kókosjógúrti eða góðum berjaþeytingi. Ég reyni að nota granólað sem algjört spari um helgar en það vill þó stundum fara þannig að það sé borðað…
Ég elska að fá mér hafragraut á köldum dögum og er hafragrautur alls ekki það sama og hafragrautur fyrir mér. Ég man þegar að ég var yngri að ég píndi oft ofan í mig hafragraut í morgunmat bara útaf því að ég vissi að hann væri hollur. Þá var hann bara hreinn með mjólk út á. En í dag þá líkist hann meira eftirrétti hjá mér, svo mikið nostra ég við hann. En hér finnur þú eina af mínum uppáhalds…
Ég þurfti að gera þetta hjartnæma súkkulaði mjög oft áður en ég náði loksins að festa það á mynd. Það kláraðist nefnilega alltaf mjög hratt enda er það fáranlega gott. Það hefur vakið mikla lukku og meira að segja á meðal þeirra sem að ég bjóst alls ekki við að finnast það gott. Ég elska að bjóða gestum upp á heimagert súkkulaði og slær það alltaf í gegn. Eins er mjög hjartnæmt að gefa einhverjum sem manni þykir vænt um…
Þegar að maður hugsar vel um sig með hollri og hreinni næringu líður manni svo vel á bæði líkama og sál. Síðustu ár hef ég fengið að sjá á eigin líðan hversu stórt hlutverk mataræði spilar inn í líðan manns og er það mér því mjög mikilvægt að borða hollt. Að sjálfsögðu er það mér því alveg jafn mikilvægt að gefa syni mínum holla fæðu til að hann geti upplifað þessu sömu vellíðan og hlakka ég mikið til að kynna honum…
Ég elska haustið svo mikið því að þá er svo gott úrval af íslensku grænmeti í búðunum og vildi ég óska þess að þetta væri svona allan ársins hring. Það er alls ekki á hverjum degi sem að allt grænmetið á disknum er íslenskt en það skiptir okkur miklu máli að kaupa íslenskt gæðahráefni. Ég keyri stundum langar leiðir til að þefa uppi íslenskt hráefni og dreymir mig um að geta ræktað mitt eigið grænmeti einn daginn. Kúrbítsnúðlur 1/2 kúrbítur 1…
Mataræði mitt hefur breyst mjög mikið á tveimur árum og langar mig að deila með ykkur þeim breytingum sem ég hef farið í gegnum. En eftir að ég átti yndislega son minn fór mig allt í einu að klígja mjög mikið við kjöti og fiski. Þó að ég borðaði mjög lítið af því fyrir, þá hvarf lystin alveg þarna. Með tímanum gerðist síðan það sama með egg og mjólkurvörur. En þó að ég sé búin að vera með mjólkuróþol í nokkur…
Það er fátt betra en að ylja sér á heitri súpu þegar kólna fer í veðri og ætla ég því að deila með þér uppskrift af fallegri og bragðgóðri rauðrófusúpu. Ég veit að mörgum hryllir við rauðrófum en mér finnst þær algjört lostæti. Þegar að þær eru eldaðar verða þær bæði sætar og safaríkar ásamt því að moldarbragðið hverfur. Rauðrófur búa yfir frábærum eiginleikum fyrir heilsuna en ég hef einmitt fjallað um það áður og getur þú lesið þér til um…
Þetta er uppáhalds kvöldmaturinn minn í augnablikinu og er ég lengi búin að vera á leiðinni að blogga um hann til að geta deilt honum með þér. Þegar að ég elda pottrétti eins og þennan, þá geri ég alltaf stóran skammt og frysti afganginn, þá á ég eitthvað í kvöldmatinn í frystinum til að grípa í þegar að ég er ekki í stuði til að elda. Grænmetiskarrý Pottur 1 – stór fyrir allan réttinn 200 g rauðlaukur 300g rauð paprika…
Það þarf ekki að vera neitt merkilegt og flókið í kvöldmatinn. Það má alveg útbúa eitthvað fljótlegt og þægilegt sem er gott. Maður heldur svo oft að maður þurfi að hafa svaka hugsun á bakvið kvöldmatinn og mikil vinna. En fyrir mér er eina markmiðið með kvöldamatnum að fá inn holla og góða næringu. Þar sem að ég hef ekki alltaf mikinn tíma til að útbúa kvöldmat þá finnst mér voða gott að henda í fljótlega og holla máltíð sem…









