Ég er lengi búin að vera á leiðinni að horfa á heimildarmyndina What the health sem kom út ekki fyrir svo löngu. Ég á það nefnilega til að mikla það fyrir mér að horfa á heimildarmyndir því ég held að þær séu allar svo þurrar og leiðilegar. En þessi var það sko aldeilis ekki og sat ég stjörf allan tímann og langar mig helst að horfa á hana aftur. What the Health er eftir sömu kvikmyndagerðarmenn og gerðu heimildarmyndina Cowspiracy sem…
Mér finnst algjör snilld að eiga kökur eins og þessar til í frystinum og geta gripið með mér þegar að ég veit að ég verð á flækingi yfir daginn. Þessar reyndar komust aldrei í frystinn því þær kláruðust svo hratt, en markmiðið er að gera annan skammt og eiga í frystinum til að grípa í þegar maður fer á flakk í sumar. Það þarf þó alls ekkert að frysta þær, ég vil bara eiga byrgðir af mat í frystinum til að grípa…
Þegar sólin er á lofti og heitt er í veðri langar mig undantekningalaust í ís. Ég hef margoft dottið í þá gryfju að enda inn í íssbúð að kaupa mér ís og svo liðið illa á eftir vegna þess hve mjólkurvörur og unnin sæta fara illa í mig. Lausnin á þessu er að eiga góðan ís í frystinum eða að búa hann til í snatri. En að þessu sinni ætla ég að deila með þér uppskrift að mangó og appelsínusorbet…
Þessa hráfæðisköku er ég búin að hafa í hausnum mjög lengi en lét loksins verða að því að gera hana. Hún er fáranlega góð þó ég segi sjálf frá. Hún er ekki of súr en heldur ekki of sæt, fullkomlega fersk og góð. Ég ákvað að gera litla uppskrift vegna þess að hráefnið er dýrt í hana og myndi ég segja að þetta sé mátuleg stærð fyrir 3-4 manns. En þér er frjálst að stækka uppskriftina ef þú vilt hafa…
Þerapían Lærðu að elska þig er einstaklingsmiðuð viðtalsmeðferð sem samin er af þerapistanum Guðbjörgu Ósk Friðriksdóttur sem hefur hjálpað fjölda manns að gjörbreyta lífi sínu. Þerapían eru 12 tímar sem eru 90 mínútur hver og fer maður alltaf heim með verkefni eftir hvern tíma sem maður á að gera í 3 vikur. Ég er svo ótrúlega þakklát fyrir að vera leiðbeinandi í þerapíunni og að fá að leiða fólk í gegnum þetta magnaða ferðalag. Það er gaman að vinna í…
Eins og það er mér mikilvægt að kaupa inn lífrænt í matinn þá hafði ekki hvarflað að mér að það væri eitthvað sem ég þyrfti að huga að í fatainnkaupum. Þegar ég var ólétt af Hinriki Berg rakst ég oft á lífræn barnaföt sem fékk mig til að leiða hugann að því hvað væri það besta fyrir litla kroppa. Eftir að hafa lesið mér síðan til um hvað það þýði að versla lífræn föt, og hvort það sé sölubrella eða ekki,…
Ég elska að finna leiðir til að njóta allskyns góðgætis sem er laust við mjólkurvörur, unna sætu og glúten. Það skiptir mig miklu máli að vita hvað ég er að láta ofan í mig og er það mér mikilvægt að búa matinn minn til sjálf. Það vissulega kostar mann meiri fyrirhöfn en að fara að kaupa sér tertusneið á kaffihúsi en það skilar sér margfalt í betri líðan. Ég er algjör sælkeri og mun ég alltaf vera opin fyrir leiðum til…
Ég get ekki lýst því hversu vel mér líður þegar ég byrja daginn á jóga og geri mér síðan grænan þeyting strax í kjölfarið. Það er svo magnað að sjá hvað líkaminn er stöðugt að gefa manni vísbendingar um hvaða fæðu maður á að láta ofan í sig. Ég fæ mjög oft sterka löngun í grænan þeyting því að mér líður svo vel af honum. Það er mér mikilvægt að breyta til í mataræðinu og að vera ekki alltaf að…
Fyrst eftir að ég hætti að borða mjólkurvörur saknaði ég oft að fá mér smjör og ost og hef ég margoft stolist í það. En þegar ég fór að vera dugleg að útbúa mér hummus þá lærði ég að það er bara vel hægt að komast í gegnum lífið án þess að klína smjöri á allt. Það er mjög ódýrt að útbúa sér hummus og tekur það enga stund. Ég kaupi kjúklingabaunir ósoðnar út í búð þar sem að það…
Þegar að maður undirbýr komu fyrsta barnsins síns vill maður gera allt 100% rétt og er mikið sem maður les sér til um. Eitt af því sem ég ákvað á meðgöngunni var að ég syldi hafa barnið mitt á taubleyjum og að ég myndi gera heimatilbúnar blautþurrkur. Af hverju? Ég hef orðið fyrir mikilli vakningu sjálf hvað varðar snyrtivörur og læt því ekki neitt á mig nema að ég sé örugg um að varan innihaldi engin skaðleg efni. Húðin er…







