Súpur þurfa alls ekki að vera leiðilegur né ósparilegur matur. Það er alveg hægt að bjóða upp á bragðgóðar og hollar súpur við hátíðleg tilefni og er það í rauninni mjög sniðugt. Ég elska sjálf saðsamar og góðar grænmetissúpur og er það ein besta leiðin til að fá góðan skammt af grænmeti í kroppinn. Þessi ungverska grænmetissúpa er í miklu uppáhaldi hjá mér og ætla ég að deila með þér uppskriftinni af henni sem er mjög einföld og þægileg. Ungversk…
Ég horfði á heimildarmynd fyrir svolitlu síðan sem að fjallar m.a. um laxafiskeldi í Noregi og hversu eitraður eldislax getur verið okkur. Ég verð að viðurkenna það að áður en ég horfði á þessa mynd þá hélt ég að laxinn sem við kaupum út í búð væri alltaf villtur – veiddur upp úr ám landsins. Ég veit ekki í hvaða draumaheimi ég var föst í en þar sem að það er aðeins hægt að veiða lax á Íslandi á sumrin þá…
Ef einhver hefði nefnt taubleyjur við mig fyrir nokkrum árum hefði ég grett mig og sagt ,,ojj, en ógeðslegt“. Ég var með þá ranghugmynd í hausnum að foreldrar sem notuðu taubleyjur á börnin sín væru með hendurnar í kúk allan daginn. Ég veit ekki af hverju, en þegar ég var ólétt af Hinriki Berg var ég alveg harðákveðin í að nota taubleyjur. Ég þekkti engan sem hafði notað þær og var þetta því algjörlega nýtt fyrir mér. En þrátt fyrir það…
Þessi gullfallegi þeytingur er ekki bara með útlitið sér í hag heldur er hann mjög bragðgóður líka. Ég elska að drekka þeytinga sem eru fallegir á litinn og er rauðrófa upplögð til þess að gefa fallegan bleikan lit. En rauðrófa er einmitt súperholl fyrir okkur en ég fer nánar út í það hér. Skærbleikur þeytingur …
Ég hef fjallað um skaðsemi plasts og mikilvægi þess að flokka það til endurvinnslu. En þegar að maður byrjar að flokka plast til endurvinnslu sér maður hversu mikið af plasti maður er að kaupa í raun og veru. Þegar að ég byrjaði að flokka plastið heima hjá mér varð mér brugðið hvað plastdallurinn fylltist skelfilega fljótt og hvatti það mig til að minnka plastnotkunina á heimilinu. Í dag hef ég tekið mörg skref til að minnka plastnotkun og er draumurinn…
Ég velti því fyrir mér á meðgöngunni hvort við Snorri ættum að fara á einhver námskeið áður en krílið okkar kæmi í heiminn. Það varð aldrei neitt úr því en ég man að ég rakst á brjóstagjafanámskeið og hugsaði með mér að brjóstagjöf gæti varla verið það flókin að maður þyrfti að fara á sérstakt námskeið fyrir hana. Þegar að dásamlegi molinn okkar kom síðan í heiminn fékk ég að sjá að brjóstagjöfin er ekki alveg eins einföld og ég…
Við erum öll sammála um að það er fátt leiðilegra en að vera með flensu og kvef. Þá eru góð ráð dýr og er ég alltaf til í að gera hvað sem er til að losa mig við slík leiðindi. Ég er sjálf ekki hrifin af því að kaupa tilbúnar mixtúrur, hálsbrjóstsykur eða annað sem að inniheldur mikið magn af unnum sykri. Það er mikið frelsi að geta búið til sína eigin blöndu í eldhúsinu heima og miklu skemmtilegra að…
Ein af bestu leiðunum til að koma grænmeti inn í mataræðið er að útbúa reglulega hollar og góðar grænmetissúpur. Það þarf alls ekki að vera flókið að gera bragðgóða og saðsama súpu. Ég hef komist að því að stundum er gott að krydda sem minnst og láta frekar saltið um að draga bragðið af grænmetinu sem er í súpunni betur fram og leyfa því að njóta sín. Ég er aðeins farin að læra að maður þarf kannski ekki alltaf að…
Það er hægt að gera allt sem manni dettur í hug mjólkurlaust ef maður vill það og er opinn fyrir því. Hér er mjög einföld uppskrift að sýrðum kasjúrjóma sem kemur ótrúlega vel út. Hann er ekki góður einn og sér frekar en hefðbundin sýrður rjómi en er fullkominn út á súpur eða í mexíkóveisluna. Sýrður kasjúrjómi 100g kasjúhnetur lagðar í bleyti yfir nótt 80 ml vatn 1 tsk eplaedik 1,5 msk sítrónusafi 1/3 tsk salt Hreinsaðu kasjúhneturnar með vatni.…
Það hefur orðið mikil vitundarvakning hvað varðar umhverfisvernd og hvað við mennirnir getum haft slæm áhrif á náttúruna. Við jarðarbúar ættum því að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að jörðin verði í góðu standi fyrir komandi kynslóðir. Við viljum ekki að afkomendur okkar þurfi að taka við afleiðingunum af sóðaskapnum í okkur og verðum því að taka ábyrgð á neysluvenjum okkar. Plastnotkun hefur farið upp úr öllu valdi í heiminum og hafa myndast heilu plastfjöllinn…









