Hugsaðu

Mataræði mitt í dag

Mataræði mitt hefur breyst mjög mikið á tveimur árum og langar mig að deila með ykkur þeim breytingum sem ég hef farið í gegnum. En eftir að ég átti yndislega son minn fór mig allt í einu að klígja mjög mikið við kjöti og fiski. Þó að ég borðaði mjög lítið af því fyrir, þá hvarf lystin alveg þarna. Með tímanum gerðist síðan það sama með egg og mjólkurvörur. En þó að ég sé búin að vera með mjólkuróþol í nokkur ár þá leyfði ég mér alveg stundum mér þegar að löngunin var mikil. En núna upplifi ég það að mig langar ekki einu sinni í mjólkurís sem er mjög sérstakt fyrir mér þar sem að ég elska ís. En ég dey ekki ráðalaus og fæ mér bara mjólkurlausan ís sem ég geri sjálf heima eða kaupi. Ég hef gengið í gegnum þessar breytingar algjörlega á mínum hraða, með því að hlusta allan tímann á líkama minn og innsæi og gera það sem er best fyrir mig. Aðalatriðið fyrir mér er að borða hreina og holla fæðu. Mataræðið mitt í dag er því plöntumiðað og fókusera ég mjög mikið á að vera að sniðganga unnar matvörur sem innihalda t.d. glúten, unninn sykur og aukaefni. Ég útbý það sem ég get frá grunni hér heima í staðin fyrir að kaupa það út í búð með einhverjum aukaefnum í.

Fordómar mínir voru byggðir á fáfræði

Ég var alltaf á móti því að vera á ákveðnu mataræði með ákveðnum titli því að maður er alltaf að þróast og læra eitthvað nýtt. Sjálf hafði ég í alvörunni fordóma fyrir þeim sem voru vegan og fannst þeir sem titluðu sig það svo öfgafullir. Þó að ég sjálf væri í rauninni farin að borða vegan mataræði þá vildi ég fyrst alls ekki titla mig sem vegan, mér fannst það svo neikvætt. En svo þegar að ég horfði á nokkrar myndir, byrjaði að fylgjast með fólki á samfélagsmiðlum sem er mjög ástríðufullt fyrir vegan lífsstílnum – þá fattaði ég að þetta væri svo miklu stærra en ákveðið mataræði. Þetta snýst um að berjast fyrir réttlæti dýra, vera með gagnrýna hugsun, þykja annt um umhverfið og hafa áhrif til þess að vekja fólk til umhugsunar. Þeir sem að eru vegan eru mjög ástríðufullir fyrir þessum lífsstíl og eru alltaf tilbúnir til að fræða og hjálpa öðrum að taka skref sem verða þennan lífsstíl. Þeir hafa bæði skilning og reynslu á þessu ferli sem maður fer í gegnum þegar maður ákveður að vilja taka skref í átt að veganisma. Þó svo að veganar birti kannski stundum efni sem að ýtir undir samviskubit hjá öðrum þá er það ekki tilgangurinn. Tilgangurinn er að hjálpa fólki að opna augun og að kynna sér málið nánar. Ég sjálf byrjaði að taka þessi skref fyrir aðeins tveimur árum síðan, ég hef ekkert alltaf verið vegan og er mjög stutt síðan ég borðaði dýr og dýraafurðir. Ég gerði það sem ég taldi að væri réttast fyrir mig á þeim tíma, en nú þegar að ég veit betur – þá geri ég betur. Við þurfum nefnilega alltaf að endurskoða hlutina og forðast að gera eitthvað bara útaf því að það hefur alltaf verið gert svoleiðis.

Hvað er að vera vegan?

Þeir sem að eru vegan kjósa að borða og lifa á þann hátt sem að sniðgengur hagnýtingu og grimmd við dýr eins og mögulegt er. Þeir borða því ekki kjöt, fisk, egg, mjólkurvörur og hunang. Ekki frekar en aðrar vörur sem innihalda eitthvað sem kemur frá dýrum, hvort sem það eru matvörur eða klæðnaður. Róm var ekki byggð á einni nóttu og þarf maður ekki að taka 30 skref á einum degi. Hlustaðu á þinn líkama og þitt hjarta, gerðu það sem er rétt fyrir þig hverju sinni og taktu þau skref sem að þig langar að taka. Hvert skref telur, hver ákvörðun sem þú tekur telur og ég hvet þig til að vera vakandi fyrir hversu mikil áhrif þú sem einstaklingur getur haft. Í dag er ótrúlega mikið úrval af vörum sem hægt er að nota í staðin fyrir þær dýraafurðir sem maður áður borðaði. Líttu í kringum þig næst þegar að þú ferð í búðina og prufaðu að kaupa eitthvað sem þú gætir notað í staðin fyrir dýraafurðir. Við erum öll að gera okkar besta, þetta snýst ekki endilega um að vera 100% .

Vegan er nefnilega ekki það sama og vegan. Veganar eru jafn ólíkir og þeir eru margir. Þú getur verið skyndibitavegan og borðað mikið af ruslfæði en þú getur líka verið hollustuvegan sem að borðar mjög hollt. Orðið vegan er því mjög víðtækt. En eftir að ég byrjaði að sniðganga dýraafurðir þá áttaði ég mig á því hve stór partur af veganvörum út í búð eru unnar vörur, þær innihalda gjarnan mikið af aukaefnum, sykri og fl. Úrvalið af vegan vörum er sem betur fer að aukast á hverjum einasta degi og er því orðið frekar auðvelt að finna þær vörur sem að henta bæði heilsu manns og bragðlaukum. 

Önnur sýn

Ég fór að hugsa meira hvað ég væri virkilega að borða þegar ég var að borða dýr og dýraafurðir en við erum í alvörunni svo aftengd því sem við erum að borða. Ég er algjör dýraelskandi og hef verið umkringd dýrum allt mitt líf. Samt gerði ég ekki þá tengingu að ég væri að borða yndislegu krúttlegu dýrin sem ég elskaði svo heitt. Ég gleymi því ekki hvar ég sat og með hverjum ég var þegar að ég gaspraði upphátt ,,LAMBAkjöt?? Erum við að borða litlu sætu lömbin?“. Þarna var ég bara krakki, það var hlegið af mér fyrir þessa uppgötvun og hélt ég áfram þrátt fyrir þessa uppgötvun mína. En þetta sýnir samt hversu aftengd við erum því sem við erum að borða. Maður kaupir bara eitthvað í pakkningu út í búð og fer heim og eldar það. Án þess að hugsa mikið út í hvaða dýr þetta er, hvernig lífi það lifði, hvaða fóðri það var á, hvort það hafi verið með einhvern sjúkdóm, hvort það hafi verið sorgmætt eða glatt. Án þess að hugsa út í það að þetta dýr var drepið til þess að neytandinn ÉG gæti borðað það. Mér finnst svo rangt að borða dýr sem að ég gæti ekki horft upp á að væru drepin og unnin til matseldar fyrir framan mig. Og aldrei gæti ég framkvæmt verknaðinn sjálf.  Af hverju ætti ég þá að styðja við þennan dýraiðnað með því að kaupa kjötið/fiskinn í búðinni?

Tegundahyggja

Í kína er t.d. hægt að kaupa hundakjöt sem ég held að flestum hér á landi finnst ósiðlegt að borða. En hver er munurinn á að borða kött, fisk, hund og/eða lamb? Öll dýr eru með tilfinningar og mér finnst alveg jafn rangt að borða lambakjöt og að borða hundakjöt. Mér finnst líka alveg jafn rangt að drekka kúamjólk eins og að drekka kattamjólk. Kálfar eru teknir frá mæðrum sínum strax við fæðingu svo að VIÐ getum fengið mjólkina okkar og allar þær afurðir sem eru búnar til úr henni. Við erum eina spendýrið sem drekkur mjólk frá annari dýrategund. Kúamjólkin er stútfull af hormónum ætluð fyrir kálfa til að þeir verði risastórar skeppnur, hvað ætli sé í alvörunni að gerast í líkamanum okkar þegar að við neytum hennar?

Þetta snýst ekki bara um kjötið og fiskinn

Við erum líka að styðja við ómannúðlega meðferð á dýrum með því að neyta dýraafurða. Þegar ég tala um dýraafurðir þá er ég að tala um t.d. mjólkurvörur, ull, leður, hunang

Erum alltaf að þróast

Auðvitað er óþægilegt að það sem að maður hefur verið alin upp við að borða alla sína ævi sjái maður einn daginn að sé kolrangt. Það er mjög auðvelt að fara í mikla reiði út í sjálfa/n sig og að skammast sín alveg niðrí tær. En maður má ekki detta í þann gír. Maður á miklu frekar að hugsa hversu þakklátur maður er að fá tækifæri til að breyta, að hlusta á sjálfa/n sig og að framkvæma það sem manni sjálfum finnst réttast.

Leyfum fólki að fara sína leið

Við erum svo langt frá því að hafa öll sömu sýn á hlutunum og erum öll á okkar einstöku leið í gegnum lífið. Ég dæmi fólk ekki fyrir hvað það er að borða. Hver manneskja gerir það sem henni finnst vera réttast fyrir sig út frá þeirri lífssýn og skilningi sem hún hefur hverju sinni. En ég hef hinsvegar oft fengið að heyra ótrúlegustu athugasemdir frá fólki fyrir að ég vilji ekki borða dýr. Sumum finnst það mjög óþægilegt og eiga mjög erfitt með að skilja það. Ég skil það mjög vel en vildi samt óska að allir bæru virðingu fyrir ákvörðunum annara og hefðu vit á því að halda sínum skoðunum fyrir sig.

Hlustaðu á líkamann

Í sambandi mínu við mat reyni ég alltaf að vera eins tengd sjálfri mér eins og hægt er. Ég hlusta alltaf á bæði líkama minn og innsæi sem gefur mér alltaf skýr svör við því hvað ég á að borða og hvað ekki. En ég hlusta alls ekki alltaf strax, það þarf alveg stundum að segja mér það nokkrum sinnum þar til að ég get ekki hunsað það lengur. Líkaminn minn gefur mér alltaf vísbendingar í formi líkamlegra verkja ásamt því að ég verð afskaplega þreytt og pirruð. En innsæið mitt er meira svona innri rödd eða tilfinning sem kemur upp þegar ég er að borða eitthvað eða er út í búð að kaupa það. En ég er mjög þakklát fyrir að vera svona tengd sjálfri mér og fá tækifæri til að taka skref í rétta átt fyrir sjálfa mig og mína heilsu. Með því að hlusta uppsker ég bæði líkamlega og andlega vellíðan.

Gerum það sem er réttast fyrir þig, umhverfið og lífverur jarðarinnar.

You Might Also Like

No Comments

Leave a Reply