Lækningamáttur túrmeriks Túrmerik er indversk lækningajurt sem hefur marga og jákvæða eiginleika fyrir heilsuna okkar. Fjölmargar rannsóknir hafa verið birtar sem gefa til kynna að túrmerik sé með gríðarlegan lækningamátt. Það er t.d. bólgueyðandi og er stútfullt af andoxunarefnum. Það hefur haft jákvæð áhrif á þunglyndi, streitu, hjartasjúkdóma, parkinson, alzheimer, krabbamein og liðagigt. Það er sífellt að færast í aukanna að fólk kynni sér óhefðbundnar lækningar sem meðferðarúrræði á sjúkdómum. Túrmerik hefur verið mjög árangursríkt í sambandi við krabbamein. Það hefur…
Það er ekki svo langt síðan að ég hélt ég væri rosalega holl þegar ég skellti spínati í blandaran ásamt helling af ávöxtum. Ég hélt að ávextir væru svo hollir að ég gæti borðað þá í öll mál og mikið af þeim. Síðar komst ég að því að þetta væri bara ekki rétt hjá mér, græni ofurdrykkurinn minn var ekkert svo mikið ofur eftir allt saman. Ávaxta skal neyta í hófi þar sem þeir innihalda ávaxtasykur sem líkaminn vill ekki fá…
Við ÍSlendingar erum örugglega með met í fjölda ísbúða og eru alls ekki öll lönd með ísbúðir opnar allt árið eins og hér heima. Ég er ein af þeim sem er gjörsamlega sjúk í ís og gæti borðað hann í öll mál ef það væri í boði. Það erfiðasta við að hætta að borða mjólkurvörur var að missa ísinn, að mínu mati. Þar kom ísvélin mín til bjargar og elska ég að tilraunast með hana. Hér er ég með uppskrift…
Það koma tímar þar sem líkaminn minn bókstaflega öskrar á kaldpressaðan safa. Hér er ég með uppskrift af gulrótarsafa sem er algjört spari hjá mér. Ég borða gulrætur í hófi vegna þess að þær innihalda meiri sykur en annað grænmeti fyrir utan rauðrófur. Þ.a.l. þegar maður djúsar gulrætur veldur það toppi í blóðsykri þar sem að maður síar trefjarnar frá við safagerð. Ég kýs því græna safan í flestum tilvikum og fæ mér gulrótar og rauðrófusafa þegar ég vil gera…
Það er magnað hvað mig hlakkar alltaf til að fá mér chiagraut á hverjum degi og að ég sé ekki búin að fá nóg af honum. Það er sennilega vegna þess hversu vel mér líður eftir að hafa borðað hann. Maður verður svo þægilega saddur í maganum. Það er líka svo hentugt að geta græjað grautinn um kvöldið og eina sem maður þarf að gera um morguninn er að skella því sem maður kýs út í hann. Það er misjafnt…
Ég ákvað að búa mér til smá gotterí um daginn til að hafa eitthvað að narta í á laugardagskvöldi og urðu þessir dásamlegu bláberjabitar til. Það sem er svona dásamlegt við þessa bláberjabita að þeir eru alveg nógu sætir til að hafa þá sem nammi um helgar og þeir eru alls ekkert það óhollir að maður geti ekki haft þá sem millimál í miðri viku. Þá er sniðugt að skera þá bara í ílangar stangir. Eins og ég hef svo…
Ég ætla að vera dugleg í græna safanum yfir jólahátíðina. Þið haldið kannski að ég sé orðin galin að blogga um grænan safa í desember þar sem allir verða á þeytingi úr einu jólaboðinu yfir í annað. Það er einmitt þá sem maður þarf á græna safanum að halda, til að vera í jafnvægi. Maður þarf hollustu til að vega upp á móti öllu sukkinu sem fylgir jólunum. Ég tala nú ekki um þegar sumir borða mikið af söltu og…
Ég held það sé nokkuð augljóst á þessu bloggi mínu hversu mikill nammigrís ég er. Ég elska súkkulaði og ég gæti ekki lifað án þess, það er bara þannig. Í þetta sinn gerði ég möndlufylltar döðlur sem ég hjúpaði með súkkulaði. Þetta er svo einfalt að það geta allir græjað þetta á núll einni. Súkkulaðið 1 dl kókosolía 1 dl kakó 1/2 dl hunang 1/4 tsk sjávarsalt 1/2 tsk vanilla Settu kókosolíuna í vaskinn í lokaðri krukkunni og láttu heitt vatn…
Ég hef áður bloggað um chiagraut og hversu gott mér finnst að fá mér hann á morgnanna eða fyrir ræktina. Um helgar finnst mér einkar gott að hafa hann í algjörri lúxusútgáfu og set ég þá karmellu á hann. Ég set ekki karmellu á hann á virkum dögum nema ég sé alveg sérstaklega góð við sjálfa mig. Það er mjög mikilvægt að vera duglegur að fá sér chiagrautinn í ýmsum útgáfum svo maður fái ekki leið á honum. Þið getið…









