Ég veit fátt betra en að fá mér chiagraut í morgunmat eða fyrir ræktina. Ég reyni að hafa chiagrautinn minn aldrei eins. Ég er alltaf að prufa mig áfram með ýmar útfærslur svo ég fái ekki leið á honum. Ég náði að týna nokkur bláber í ágústmánuði mér til mikillar gleði því íslensk bláber eru einfaldlega best. Uppskriftin miðast við einn: Chiagrautur 250 ml möndlumjólk (helst heimagerð) 2 msk chia fræ 1 msk hampfræ (má sleppa) 1/2 tsk vanilla – kaupi…
Áður fyrr keypti ég möndlumjólkina út í búð því ég hélt að þetta væri eintómt vesen að búa til mína eigin mjólk. Fljótt fór ég að átta mig á því að það var búið að troða allskonar gervisætuefnum í möndlumjólkina út í búð og ýmsu fleiru sem ég kærði mig ekkert um að hafa í möndlumjólkinni minni. Ég setti því letina á hilluna og bjó til mína eigin mjólk og hef gert síðan, það tekur enga stund og er rosalega…
Chiafræ hafa verið vinsæl upp á síðkastið, það er nú oft þannig hjá okkur Íslendingum að það kemur stundum einhverskonar æði yfir almúgan. Hver man ekki eftir magnesíumæðinu þar sem að magnesíum hreinlega seldist upp á landinu? Núna hafa chiafræin mikið verið í dagsljósinu og eru margir búnir að bæta þessum stórkostlegu fræjum inn í matarræðið sitt. Sem er alls ekki furða því að þessi mögnuðu fræ bjóða upp á mikla valmöguleika í matargerð svo ég minnist nú ekki á mögnuðu kosti þeirra…


