Þessi rjómi er sko engin venjulegur rjómi enda er ekkert skemmtilegt að vera venjulegur. Það staldra flestir við og klóra sér í hausnum yfir áferðinni og útlitinu á honum en maður gleymir því um leið og maður smakkar hann. Hann kemur nefnilega mjög á óvart og kemur vel í staðin fyrir venjulegan rjóma. Það er því vel hægt að setja hann á vöfflurnar, borða hann með súkkulaðiköku eða hvað sem þér dettur í hug og lystir til. Kasjúrjómi 1 dós kókosmjólk…
Það er ótrúlega gaman að búa sér til hummus til að eiga á heimabakaða brauðið eða jafnvel heimabakaða hrökkbrauðið. Það eru endalausir möguleikar í hummusgerðinni sem er algjör snilld. Auðvelt er að gera hummusinn að sínu og nota þau hráefni sem eru til hverju sinni. Það er einmitt það sem ég gerði núna, notaði það sem var til í ísskápnum og það kom svo vel út að ég ætla að deila uppskriftinni með þér. Þessi hummus er einstaklega bragðgóður og virkilega…
Einu sinni var ég algjör brauðfíkill og freistaðist ég oft í hvítt, gerjað hveitibrauð eftir að ég fækk fæðuóþolið. Ég get ekki líst því hversu illa mér leið alltaf á eftir, það var bókstaflega eins og það hefði verið keyrt yfir magann minn, kvölin var svo mikil. Fljótt fór ég að læra það að freistingin væri ekki þess virði og leitaði annarra leiða. Síðustu 2 ár hef ég verið dugleg að prufa mig áfram í glútenlausri brauðgerð, maður þarf alls ekki…
Ég geri mér reglulega rauðrófusafa úr fallegu safavélinni minni. Ég nota nú aldrei neina sérstaka uppskrift, týni bara eitthvað í hann sem ég á í ísskápnum og mig lystir í hverju sinni. En ég ákvað að skrifa niður uppskrift til að deila með þér, kæri lesandi, og vona ég að þér líki vel. Rauðrófusafi …
Það er endalaust hægt að leika sér með chiagraut og hafragraut. Ég reyni að hafa morgunmatinn ávallt fjölbreyttan og helst aldrei eins til að ég fái ekki leið á neinu. Nú á dögunum gerði ég chiahafragraut með berjaþeytingi og var þetta eins og hinn besti eftirréttur. Ég er mikill sælkeri og er þessi morgunmatur algjör snilld um helgar þegar manni langar að gera vel við sig. Chiahafragrautur fyrir 2 1/2 dl haframjöl 2 msk chia fræ 200 ml heimatilbúin möndlumjólk…
Þegar kólna fer í veðri er alltaf gott að gera sér góða súpu til fá hita í kroppinn. Það er búið að kólna ansi hratt hjá okkur hérna í Århus og erum við strax búin að taka fram ullarsokka, vettlinga og húfur. Það er fyndið hvað maður heldur alltaf að allt sé betra annars staðar en á Íslandi en veturinn í Danmörku ekkert svo ósvipaður þeim íslenska og er jafnvel kaldari. Vetrartímabilið getur samt sem áður verið ansi huggulegt með…
Þennan lúxusmorgunmat gerði ég um síðustu helgi og verð ég að deila með þér uppskriftinni því þetta var virkilega gott. Þessi morgunmatur er algjört sælgæti enda í sætari kantinum, en það má allt um helgar, ekki satt? Það er mjög skemmtilegt að skella þeyting í skál ásamt þurrkuðum berjum, kókosflögum og fleiru gúmmelaði. Ég reyni að hafa sem mesta fjölbreytni í fæðunni hjá mér svo ég fái ekki leið á hlutunum og er því tilvalið að skella þeytingnum stundum í…
Allflestar uppskriftir af súkkulaðiþeytingum sem hafa orðið á vegi mínum innihalda banana. Þar sem bananar fara frekar illa í mig ákvað ég að taka málin í mínar hendur. Ég hef verið með hugmynd af súkkulaðiþeyting í kollinum lengi og ákvað loksins að skella henni í blandarann. Það tókst mjög vel og var niðurstaðan vonum framar. Þá er í rauninni ekki eftir neinu öðru að bíða en að deila uppskriftinni með þér. Súkkulaðiþeytingur …
Hér í Danmörku stendur yfir viku vetrarfrí svo að ég er að nýta tímann vel í að búa til nokkrar uppskriftir á meðan ég hvíli mig frá námsbókunum. Hér er ein þeirra, gómsætar hafrakúlur sem eru tilvaldar til að narta í milli mála. Það er mjög einfalt að búa þær til og tekur það alls ekki langan tíma. Hafrakúlur …
Nú veit ég ekki hvort að þú hafir náð að byrgja þig upp af bláberjum fyrir veturinn, þau eru svo sannarlega fjársjóður og sífellt erfiðara að finna vegna slæms veðurfars. Ég missti af bláberjatímabilinu heima í ár vegna flutninga svo ég veit ekki hvort það hafi verið góð uppspretta. En síðustu sumur hef ég pínt fjölskyldumeðlimi með mér í berjamó og er ég svo þrjósk að ég neita að fara heim fyrr en ég er komin með ágætan skammt í…









