Flokkur

Njóttu

Allar uppskriftir eru lausar við glúten, mjólkurvörur og unnin sykur

Njóttu Góðgætis

Sætkartöflu brúnkur

Bloggið, delicouslyella.com, hjá bloggaranum Ellu Woodward er einstaklega fallegt og ekki eru bækurnar hennar síðri. En það er nýbúið að þýða eina af þeim yfir á íslensku sem ber nafnið Ómótstæðileg Ella. Vinsælasta uppskriftin hennar á blogginu eru sætkartöflu brúnkur sem ég hef alltaf verið á leiðinni að prufa. Nú á dögunum birti hún endurbætta útgáfu af þessari uppskrift sem ég ákvað að prufa og er ég ennþá gáttuð hvað þessar dásamlegu sætkartöflu brúnkur eru dásamlega góðar. Það hljómar kannski…

Lesa meira

Njóttu Góðgætis

Hnetusmjörs“skálar“

Hver kannast ekki við Reese’s peanut butter cups frá Herseys? Þetta nammi svipar allavega mjög mikið til þess og það tekur enga stund að útbúa það. Það er því tilvalið að græja þetta þegar að sykurpúkinn kallar á mann eða þegar maður vill eiga eitthvað með kaffinu handa gestum. Hnetusmjörs“skálar“                              –                              …

Lesa meira

Featured Njóttu Morgunsins

Sælkeragrautur

Þegar kólna fer í veðri er svo huggulegt að hita sig upp fyrir daginn með því að fá sér hafragraut í morgunmat. Hafragrautur er nefnilega ekki bara hafragrautur. Það er hægt að leika sér endalaust í grautargerðinni og þarf enginn grautur að vera eins. Með því að gera fjölbreyttar útgáfur af hafragrautnum fær maður síður leið á honum og hlakkar manni til að prufa eitthvað nýtt á hverjum degi. Þessi uppskrift sem ég ætla að deila með þér núna er…

Lesa meira

Njóttu Hádegis- og Kvöldmatar

Bakað eggaldin með unaðslegu pestói

Það þarf ekki að vera flókið að elda góða grænmetisrétti og er mjög auðvelt að útbúa eitthvað fljótlegt og bragðgott. Það er mikið af skemmtilegu hráefni í ísskápnum hjá mér núna eftir að hafa kíkt á rúntinn um daginn og verslað úrvalsgrænmeti beint af býli. Ég keypti t.d. þetta fallega lífræna eggaldin á lífræna markaðinum Engi og er það algjört sælgæti. Þessi máltíð var gríðarlega einföld ásamt því að vera afar bragðgóð. Eggaldinið var bakað í ofni en það hefði líka…

Lesa meira

Njóttu Góðgætis

Mjólkurlaus súkkulaðiís

Þessi súkkulaðiís er í algjöru uppáhaldi hjá mér. Ekki einungis vegna þess hversu bragðgóður hann er heldur líka vegna þess hversu ótrúlega einfalt er að gera hann. Það þarf ekki að nota ísvél til að búa þennan ís til sem er stór kostur fyrir gleymna manneskju eins og mig sem gleymir alltaf að setja ísskálina í frysti svo hægt sé að búa til ís. Súkkulaðiís 600 ml kókosmjólk 1 dl kakó 1 tsk vanilla 1/8 tsk salt 60 ml hlynsíróp…

Lesa meira

Hugsaðu Njóttu

Góðgæti beint frá býli

Ég fór á smá “sveita“rúnt fyrir stuttu. Það er svo gott að fara út fyrir höfuðborgarsvæðið og keyra um í fallegri náttúru. Tilvalið er að taka með sér smá nesti og stoppa á fallegum stað og snæða það. Mér finnst upplagt að taka daginn í þetta, stoppa á fallegum stöðum, kíkja á íslenskar gróðrarstöðvar og jafnvel kíkja í sund. Ég var aðallega í leit að fallegu íslensku grænmeti og flakkaði á milli gróðrarstöðva. Það sem stakk mig mest í hjartað…

Lesa meira

Njóttu Góðgætis Millimála Safa og Þeytinga

Melónukrap með myntu

Þegar heitt er í veðri er svo gott að kæla sig niður með svalandi drykk. Þegar ég var á ferðalagi um Asíu fékk ég mér oft melónukrap í hitanum og það var alltaf jafn kærkomið. Melóna býr yfir ýmsum eiginleikum fyrir heilsuna okkar en hún er m.a. talin vera andoxandi, bólgueyðandi og blóðþrýstingslækkandi. Ásamt því að innihalda kalíum, magnesíum, C-, B6- og A- vítamín. Melónukrapið er bragðgóð leið til að “vökva sig“ í hitanum og til að forðast ofþornun. Það…

Lesa meira

Njóttu Góðgætis Safa og Þeytinga

Jarðaberjaþeytingur

Þegar sólin fer að skína og hitna fer í veðri er ómetanlegt að kæla sig niður með ísköldum jarðaberjasjeik. Reyndar finnst mér gott að kæla mig niður allt árið með öllu sem líkist og bragðast eins og ís, en það er nú annað mál. Þar sem ég þoli illa mjólkurvörur var ég ekki lengi að finna leið fyrir mig að njóta jarðaberjaþeytings til að svala ísþörf minni af og til. Þennan þeyting tekur enga stund að græja og eru örfá…

Lesa meira

Njóttu Hádegis- og Kvöldmatar

Kínóagrænmetisréttur í ananasskál

Þegar ég var á flakki um heiminn síðastliðið vor þá fékk ég æðislegan hrísgrjónarétt eftir að hafa gengið um í hitanum á phi phi eyjum í leit að gistingu. Ég var ekki sérstaklega hrifin af tælenska matnum svona almennt en þessi réttur á alltaf sérstakan stað í hjarta mínu. Mig langaði svo ótrúlega mikið í þennan rétt um daginn að ég ákvað að reyna að búa hann til og kom það bara mjög vel út. Ég ætla því að deila…

Lesa meira

Njóttu Góðgætis

Heimagert súkkulaði

Þetta súkkulaði geri ég oft og á í frystinum. Það klárast hrikalega hratt enda er það svo rosalega gott. Það er enginn vandi að gera sitt eigið súkkulaði og er gaman að bjóða gestum og gangandi upp á heimagert súkkulaði. Það er oft allskonar aukaefni í súkkulaði sem maður kaupir út í búð í dag og hrikalega erfitt að finna eitthvað sem er laust við unninn sykur og mjólkurvörur. Ég skora því á þig að prufa að gera þitt eigið…

Lesa meira