Íslenskir portobellosveppir hafa glatt hjartað mitt mikið á síðustu mánuðum og fer ég reglulega og birgi mig vel upp af þeim. Það er sama hvernig ég matreiði þá, þeir gefa máltíðinni alltaf svo mikið lúxusyfirbragð og ég gæti skrifað langan pistil um hversu mikið ég elska þá. En ég hef verið að versla þá aðallega af Rabbarbarnum sem er bæði staðsettur í mathöllinni á Granda og Hlemmi. Ég fer oft þangað að versla íslenskt gæðagrænmeti. Bæði vegna þess að það…
Ég elska kalt kartöflusalat og er það svo mikill partur af sumrinu. Það er vel hægt að útbúa slíkt á vegan hátt og kem ég hér með uppskrift af mínu uppáhaldskartöflusalati. Það er upplagt að bjóða upp á það í grillveislunni eða jafnvel hægt að taka það með sér í útileguna. Þetta kartöflusalat er svo dásamlega ljúffengt með grilluðu grænmeti og þá sérstaklega grilluðum portobello sveppum. Ég fæ bara vatn í munninn við að skrifa þetta, mmm! Kartöflusalat Uppskriftin er…
Ég komst að því um daginn að það er hægt að gera hinu einföldustu pönnukökur með örfáum innihaldsefnum. Það besta við þær eru að þær eru glútenlausar og vegan. En aðalinnihaldsefnið er kjúklingabaunahveiti sem að er ótrúlega auðvelt að vinna með. Þetta hveiti er mjög hlutlaust og getur maður því leikið sér endalaust með bragðið á því og sett þau krydd sem að passa með hráefninu hverju sinni. Það er hægt að skella hverju sem þér dettur í hug í…
Ég skal alveg viðurkenna það að þegar sú hugmynd kemur upp að hafa salat í matinn þá verð ég aldrei spennt. En svo þegar ég byrja að borða það þá hrissti ég alltaf hausinn og skil ekkert í því af hverju ég borði ekki salat oft í viku því að mér finnst það svo gott bæði í munn og maga. Þegar að maður heyrir orðið salat heldur maður að það sé eitthvað sem er þurrt og leiðilegt að tyggja. En…
Það er alls ekki langt síðan að ég fattaði hversu gott brokkolí er, eða spergilkál eins og það er kallað á okkar ástkæra móðurmáli. En það er eitt af því grænmeti sem ég hef vanmetið í of langan tíma. Ég fæ reglulega sterkar langanir í brokkolí og það er þá sennilega vegna þess að það er eitthvað í brokkolíinu sem að líkami minn þarf meira af. En brokkolí inniheldur fáar kaloríur en er samt sem áður mjög ríkt af trefjum, steinefnum,…
Ég er ekki að grínast, en þetta er uppáhaldsmaturinn minn í augnablikinu. Þessi máltíð hefur það allt sem að góð málíð þarf að hafa. Blómkálið er svo gott með þessum unaðslega vegan osti sem ég birti uppskrift af um daginn. En blómkálið er svo safaríkt, stökkt og bragðgott. Salatið sem ég ber fram með þessu passar líka svo fullkomlega með blómkálinu. Þessa máltíð er mjög einfalt að útbúa og tekur það enga stund. Stundum er einfaldleikinn bestur. Það er nefnilega…
Ó hvað ég gæti skrifað langan pistil um það hversu mikið ég elska pizzu eða flatböku eins og maður segir á góðri íslensku. En heimatilbúin flatbaka er klárlega uppáhaldsmaturinn minn. Mig hefur lengi dreymt um að búa til góða uppskrift af flatbökubotni sem að er glútenlaus og tekur ekki langan tíma að útbúa. Eftir smá tilraunastarfsemi er ég sátt með útkomuna og ætla að deila henni með þér með von um að þér líki hún jafnvel og mér. Flatbökusósa 2…
Ég elska að deila með ykkur einföldum og bragðgóðum uppskriftum. Þó að ég elski að borða hollan mat þá nenni ég ekki alltaf að eyða miklum tíma í eldhúsinu þó að stundum sé ég í stuði fyrir það. En það koma stundum dagar þar sem að ég nenni ekki að útbúa flókna máltíð og vil geta skellt í einfalda og holla máltíð. Að þessu sinni ætla ég því að deila með þér gómsætri rauðrófuskál sem að bragðast ekki bara eins…
Sama hvort að þú sért vegan eða sniðgangir mjólkurvörur þá held ég að flestir sem að hætta að borða mjólkurvörur eigi það sameiginlegt að sakna ostsins mikið. En það var allavega þannig í mínu tilfelli. Ég var lengi alltaf að stelast af og til í ost þrátt fyrir að vera búin að taka allar aðrar mjólkurvörur út. En ég hef loksins hætt því og er lystin fyrir hefðbundnum osti horfin. Þrátt fyrir að núna sé svo miklu meira úrval af…
Sítrónugrassúpa 125 g laukur 20 g lífr. ferskur engifer 2 tsk lífr. túrmerikkrydd frá Sonnentor 1 fennell (300g) 300g gulrætur 2 dós kókosmjólk frá biona 300 ml vatn 1 sítrónugras 1 msk tamarisósa 1 msk sítrónusafi frá bio zentrale 1 msk gróft salt Byrjaðu á því að skera grænmetið fallega niður. Steiktu síðan laukinn upp úr góðri olíu og bættu síðan restinni af innihaldsefnunum út í pottinn. Láttu þetta malla í u.þ.b. 40 mínútur á vægum hita…









