Njóttu Hádegis- og Kvöldmatar

Brokkolí í öðru ljósi

Það er alls ekki langt síðan að ég fattaði hversu gott brokkolí er, eða spergilkál eins og það er kallað á okkar ástkæra móðurmáli. En það er eitt af því grænmeti sem ég hef vanmetið í of langan tíma. Ég fæ reglulega sterkar langanir í brokkolí og það er þá sennilega vegna þess að það er eitthvað í brokkolíinu sem að líkami minn þarf meira af. En brokkolí inniheldur fáar kaloríur en er samt sem áður mjög ríkt af trefjum, steinefnum, vítamínum og andoxunarefnum. Ég elska þegar að maður getur keypt íslenskt brokkolí út í búð en það er því miður ekki stór partur ársins sem að það er hægt. Það verður svo yndislegt þegar að úrvalið af íslensku grænmeti verður meira og aðgengilegra, en ég trúi því virkilega að það verði þannig í framtíðinni. Ég sé að ég get talað um ást mína á brokkolíi endalaust svo að ég ætla að setja punktinn hér og vinda mér yfir í þessa mögnuðu uppskrift.

Þessi einfalda dressing setur brokkolíið á allt annan stall og verður það að hinu mesta gúmmelaði á nokkrum mínútum. Þegar að ég útbý það hérna heima nær það stundum ekki að fara alla leið á diskinn þegar að við sonur minn erum tvö ein heima. Við tökum oft fatið, setjumst með það í sófann og gúffum þetta í okkur á mjög skömmum tíma. Þetta er alveg fáranlega gott og ég mæli með að þú prófir. Ég elska að setja grænmeti í nýjan og sparilegan búning með því að nostra aðeins við það.

Það eina sem þú þarft að hafa bakvið eyrað er að elda það ekki of lengi því þá verður það of mjúkt. Ég elska t.d. að baka það í ofni en samt ekki þannig að það verði að mauki, ég vil hafa það frekar stökkt. 

Marineringin

  • 2 msk möndlusmjör
  • 3 msk kaldpressuð ólífuolía
  • 1 msk næringarger
  • 1 tsk tamarisósa
  • 1 tsk tómatpúrra
  • 1/2 msk döðlusíróp
  • gróft salt
  1. Hrærðu öllum innihaldsefnunum saman með písk í skál.
  2. Heltu marineringunni yfir brokkolíið og nuddaðu henni vel saman við. Einnig er hægt að pensla henni á ef þú vilt ekki skíta þig út.
  3. Bakaðu við 230°C í 6-8 mín.

Þessi marenering dugar á ca. 1 miðlungs brokkolíhaus. Það eina sem þú þarft að hafa bakvið eyrað er að elda það ekki of lengi því þá verður það of mjúkt, að mínu mati er best að hafa það frekar stökkt. 

Njóttu í botn <3

You Might Also Like

No Comments

Leave a Reply