Ég skal alveg viðurkenna það að þegar sú hugmynd kemur upp að hafa salat í matinn þá verð ég aldrei spennt. En svo þegar ég byrja að borða það þá hrissti ég alltaf hausinn og skil ekkert í því af hverju ég borði ekki salat oft í viku því að mér finnst það svo gott bæði í munn og maga. Þegar að maður heyrir orðið salat heldur maður að það sé eitthvað sem er þurrt og leiðilegt að tyggja. En þetta salat hér gjörbreytir þeirri ímynd orðsins og setur salat á nýjan stað í hjarta mínu. Þetta salat á alltaf vel við, sama hvort það er í kvöldamatinn heima í miðri viku eða um helgi og mun þess vegna eiga vel við í matarboðið eða veisluna.
Það tekur enga stund að henda í þetta salat og er það alveg ofboðslega einfalt.
Það sem að þú þarft
- Sætar kartöflur
- Kirsuberjatómata
- Brokkolí
- Avacado
- Gúrku
- Rauðlauk
- Epli
- Döðlur
- Spínat
- Lambhagasalat
- Sýrðan kasjúrjóma
- Avocado
- Skerðu niður sætu kartöflurnar og bakaðu í ofni, settu á þær ólífuolíu, gróft salt, sítrónupipar og smá reykta papriku.
- Skerðu það niður sem þarf að skera niður og skelltu þessu síðan öllu saman í skál.
- Bættu síðan nokkrum matskeiðum af sýrðum kasjúrjóma saman við.
- Gott er að rista fræ eða hnetur til að setja þetta í algjöran lúxusbúning.

Þá er bara að njóta í botn og þakka sjálfum þér fyrir að útbúa svona næringarríka og fallega máltíð handa þér. Þegar að við gerum það þá líður okkur svo ofboðslega vel bæði á líkama og sál.
-Anna Guðný





No Comments