Flokkur

Njóttu Hádegis- og Kvöldmatar

Allar uppskriftir eru lausar við glúten, mjólkurvörur og unnin sykur

Njóttu Hádegis- og Kvöldmatar

Sushiskál

Sushi er alltaf hátt á vinsældarlistanum hjá mér og ef ég mætti ráða myndi ég borða það alla daga. En þegar að ég les á innihaldslýsingu á sushi á sushibökkunum er listinn ansi langur sem gerir það að verkum að ég fæ mér það ekki alla daga. Ég hef ekki lagt í það að búa það til sjálf heima en um daginn var ég með ótrúlega sterka löngun í sushi svo ég ákvað að útbúa svona einhverskonar sushiskál. Ég skil…

Lesa meira

Njóttu Hádegis- og Kvöldmatar

Súper næringarrík skál!

Ég elska að næra mig á þann hátt sem að lætur mér líða vel. En það að borða hollt þarf alls ekki að vera bragðvont né óspennandi. Mikilvægt er að vera opin/n fyrir því að smakka eitthvað nýtt (jafnvel nokkrum sinnum) og þróa bragðlaukana sína áfram þegar maður er að innleiða meira af hollri fæðu í mataræðið sitt. Það er nefnilega ekkert svo langt síðan að ég sjálf borðaði bara fáeinar tegundir af t.d. grænmeti og jiminn hvað ég er…

Lesa meira

Featured Njóttu Hádegis- og Kvöldmatar

Mitt uppáhalds pasta

Pasta er eitt af því fyrsta sem ég lærði að matreiða í eldhúsinu heima og gerði ég mikið af því, kannski aðeins of mikið. Það var oftast gert með skinku, rjómaosti, smurostum og örlitlu grænmeti. Í dag er staðan aðeins önnur þar sem að ég hef alveg hætt að neyta dýraafurða og hvítt pasta fer alls ekki vel í mig. Það var því smá skellur þegar að ég þurfti að læra að gera pasta á mjólkurlausan & glútenlausan máta á…

Lesa meira

Njóttu Hádegis- og Kvöldmatar

Sumarlegt salat

Ég veit ekki af hverju, en ég tengi ferskt og gott salat alltaf við sumartímann. En þegar að heitara er í veðri þá hef ég meiri löngun í salat heldur en yfir vetrartímann, ég er meira í súpunum þá. Í tilefni sumardagsins fyrsta þá langaði mig að deila með ykkur skemmtilegri uppskrift að salati sem að er bæði djúsí og bragðgott. Það þarf nefnilega alls ekki að vera leiðilegt að borða salat, það er vel hægt að gera það á…

Lesa meira

Njóttu Hádegis- og Kvöldmatar

Thailenskur hrísgrjónaréttur

Kvöldmatur á mínu heimili er í flestum tilfellum mjög fljótlegur og þægilegur. Uppskriftin sem ég ætla að deila með þér núna er einmitt eitthvað sem ég geri mjög oft í kvöldmatinn og fær hún alltaf góðar undirtektir. Það tekur enga stund að útbúa hana og elska ég að gera hana í stóru magni til þess að eiga afgang daginn eftir. Thailenskur hrísgrjónaréttur 1 bolli hýðishrýsgrjón + 2 bollar vatn 6 gulrætur 1/2 toppkál (má líka nota hvítkál) lítill laukur 1-2…

Lesa meira

Njóttu Hádegis- og Kvöldmatar Jólanna

Polenta með bökuðu eggaldin

Þessi uppskrift sýnir það og sannar að einfaldleikinn er alltaf bestur. En í þetta sinn þá gerði ég ótrúlega bragðgóða polentu sem ég bar fram með bökuðu eggaldin, klettasalati, rósmarín, granatepli og sýrðum kasjúrjóma. Ég er búin að vera á leiðinni að blogga um þessa uppskrift í nokkra mánuði en þetta er í miklu uppáhaldi hjá mér þessa daganna og þá sérstaklega þessi samsetning. Það tekur enga stund að útbúa þessa máltíð og þarf maður ekki mörg innihaldsefni í verkið.…

Lesa meira

Njóttu Hádegis- og Kvöldmatar Jólanna

Rauðrófu & perusalat

Meðlætið spilar ótrúlega stóran þátt í góðri jólamáltíð og er því mikilvægt að það passi með því sem maður ætlar að hafa í jólamatinn. Í ár verður innbökuð sveppasteik í aðalhlutverki í jólamatnum á mínu heimili og verður dásamlegt rauðrófu & perusalat eitt af meðlætunum sem verður á boðstólnum með henni. Þetta fallega salat er ekki bara stórkostlega nærandi fyrir augað heldur er það algjör veisla fyrir braðglaukana. Rauðrófur og perur passa svo vel saman og er þessi samsetning af…

Lesa meira

Njóttu Hádegis- og Kvöldmatar Jólanna

Innbökuð sveppasteik

Jólin snúast aðallega um að borða góðan mat hjá mér og hefur það verið þannig síðan ég man eftir mér. Ég hef alltaf verið gríðarlega matsár og ég man það eins og það hafi gerst í gær þegar að ég var u.þ.b. 12 ára með ælupest um jólin og gat ekkert borðað. Síðan þá hefur matseðill og innihaldsefni jólamáltíðarinnar gjörbreyst á mjög jákvæðan hátt. Þó að ég borði plöntumiðaða og hreina fæðu í dag er jólamaturinn og öll jólin umvafin…

Lesa meira

Njóttu Hádegis- og Kvöldmatar

Gómsætur linsubaunapottréttur

Ef ég á að vera hreinskilin þá hafa baunir og baunaréttir aldrei hljómað neitt sérstaklega spennandi í mínum eyrum. En þegar að kalt er í veðri og mig langar í eitthvað vermandi fyrir kroppinn þá eru svona baunaréttir einmitt orðið eitt af því besta sem ég fæ. Ég elska að gera stóran skammt og eiga hann til að borða jafnvel næstu tvo daga – Svo mikil er ást mín orðin á baunapottréttum og viðhorf mitt til bauna hefur gjörbreyst. Þessi…

Lesa meira

Njóttu Hádegis- og Kvöldmatar

Heilsubætandi Miso-súpa

Ég fór í 1.skipti á Ramen Momo um daginn og fékk bestu súpu sem ég hef á ævi minni smakkað. Síðan þá hef ég varla getað hugsað um annað en þessa blessuðu súpu og varð ég því að reyna að útbúa mína eigin. Eftir 5 tilraunir er ég loksins sátt og get því deilt með ykkur uppskriftinni þrátt fyrir að hún eigi langt í land með að vera nákvæmlega eins og sú sem ég smakkaði. En þessi súpa er mjög…

Lesa meira