Þessi súkkulaðiís er í algjöru uppáhaldi hjá mér. Ekki einungis vegna þess hversu bragðgóður hann er heldur líka vegna þess hversu ótrúlega einfalt er að gera hann. Það þarf ekki að nota ísvél til að búa þennan ís til sem er stór kostur fyrir gleymna manneskju eins og mig sem gleymir alltaf að setja ísskálina í frysti svo hægt sé að búa til ís. Súkkulaðiís 600 ml kókosmjólk 1 dl kakó 1 tsk vanilla 1/8 tsk salt 60 ml hlynsíróp…
Ég fór á smá “sveita“rúnt fyrir stuttu. Það er svo gott að fara út fyrir höfuðborgarsvæðið og keyra um í fallegri náttúru. Tilvalið er að taka með sér smá nesti og stoppa á fallegum stað og snæða það. Mér finnst upplagt að taka daginn í þetta, stoppa á fallegum stöðum, kíkja á íslenskar gróðrarstöðvar og jafnvel kíkja í sund. Ég var aðallega í leit að fallegu íslensku grænmeti og flakkaði á milli gróðrarstöðva. Það sem stakk mig mest í hjartað…
Þegar heitt er í veðri er svo gott að kæla sig niður með svalandi drykk. Þegar ég var á ferðalagi um Asíu fékk ég mér oft melónukrap í hitanum og það var alltaf jafn kærkomið. Melóna býr yfir ýmsum eiginleikum fyrir heilsuna okkar en hún er m.a. talin vera andoxandi, bólgueyðandi og blóðþrýstingslækkandi. Ásamt því að innihalda kalíum, magnesíum, C-, B6- og A- vítamín. Melónukrapið er bragðgóð leið til að “vökva sig“ í hitanum og til að forðast ofþornun. Það…
Eftir að hafa ferðast aðeins um heiminn þá fór ég að meta Ísland miklu meira en áður. Ég fór að sjá landið okkar í allt öðru ljósi og fór að bera allt aðrar tilfinningar til þess. Maður heldur nefnilega svo oft að grasið sé grænna hinum megin, en þar skjátlast manni oft hrapalega. Á ferð minni um heiminn saknaði ég fjallanna, mosans og hraunsins gríðarlega mikið. Ég saknaði þessarar ekta íslensku náttúru og áttaði maður sig á því hvað landið okkar…
Þegar sólin fer að skína og hitna fer í veðri er ómetanlegt að kæla sig niður með ísköldum jarðaberjasjeik. Reyndar finnst mér gott að kæla mig niður allt árið með öllu sem líkist og bragðast eins og ís, en það er nú annað mál. Þar sem ég þoli illa mjólkurvörur var ég ekki lengi að finna leið fyrir mig að njóta jarðaberjaþeytings til að svala ísþörf minni af og til. Þennan þeyting tekur enga stund að græja og eru örfá…
Þegar ég var á flakki um heiminn síðastliðið vor þá fékk ég æðislegan hrísgrjónarétt eftir að hafa gengið um í hitanum á phi phi eyjum í leit að gistingu. Ég var ekki sérstaklega hrifin af tælenska matnum svona almennt en þessi réttur á alltaf sérstakan stað í hjarta mínu. Mig langaði svo ótrúlega mikið í þennan rétt um daginn að ég ákvað að reyna að búa hann til og kom það bara mjög vel út. Ég ætla því að deila…
Það er nú ekki svo langt síðan að djúpsteikingarpottar voru til á öllum heimilum landsins eins og ekkert væri sjálfsagðara. Í dag er fólk sem betur fer aðeins heilsusinnaðara og djúpsteikingarpottarnir eru sjaldséð sjón, enda árið 2016. En þrátt fyrir að það sé árið 2016, virðast samt örbylgjuofnar vera algjör staðalbúnaður á heimilum, skólum og vinnustöðum landsins. Fannst ég skemma matinn í örbylgjuofni Örbylgjumáltíðir má græja á þremur mínútum og geta verið mjög hentugar. Eins getur verið þægilegt að taka…
Það er ekki svo langt síðan að ég hagaði mér eins og ég hélt að allir aðrir vildu að ég gerði. Það var sama hvort það snerist um það í hvaða fötum ég klæddist, hvernig ég talaði, hvernig ég vann vinnuna mína eða hvað ég myndi gera í frítíma mínum. Allar þessar ákvarðanir lagði ég meira og minna í hendurnar á öðrum. Ég spurði sjálfa mig aldrei að því hvað ég vildi enda hafði ég sennilega enga hugmynd um hvað…
Þetta súkkulaði geri ég oft og á í frystinum. Það klárast hrikalega hratt enda er það svo rosalega gott. Það er enginn vandi að gera sitt eigið súkkulaði og er gaman að bjóða gestum og gangandi upp á heimagert súkkulaði. Það er oft allskonar aukaefni í súkkulaði sem maður kaupir út í búð í dag og hrikalega erfitt að finna eitthvað sem er laust við unninn sykur og mjólkurvörur. Ég skora því á þig að prufa að gera þitt eigið…
Þessi rjómi er sko engin venjulegur rjómi enda er ekkert skemmtilegt að vera venjulegur. Það staldra flestir við og klóra sér í hausnum yfir áferðinni og útlitinu á honum en maður gleymir því um leið og maður smakkar hann. Hann kemur nefnilega mjög á óvart og kemur vel í staðin fyrir venjulegan rjóma. Það er því vel hægt að setja hann á vöfflurnar, borða hann með súkkulaðiköku eða hvað sem þér dettur í hug og lystir til. Kasjúrjómi 1 dós kókosmjólk…









