Í nokkra mánuði datt ég alveg úr gír hvað hollan lífsstíl og mataræði varðar. Ég festist í vítahring þar sem ég var alltaf þreytt og borðaði fæðu sem gerði mig ennþá þreyttari. Líkamleg og andleg vanlíðan var mikil og var eins og mér hefði verið bókstaflega kippt úr sambandi. Að festast í vítahring Ástæðan fyrir því að ég datt úr gír til að byrja með er að ég geng með mitt fyrsta barn og voru fyrstu mánuðir meðgöngunnar mér líkamlega…
Ég fer ekki oft út af sporinu í mataræðinu og borða öllu jafna mjög hollan og hreinan mat. Það er margt sem ég kýs að sniðganga alveg, eins og t.d. glúten, mjólkurvörur og unninn sykur. Þar sem að ég er með mikið fæðuóþol fæ ég að líða mikið fyrir það, bæði andlega og líkamlega, þegar ég fer út af sporinu. Ég verð m.a. þreytt, pirruð, slöpp, orkulaus auk þess sem að meltingin mín fer alveg í rugl. En þar sem ég…
Hefur þú lent í aðstæðum þar sem þú hefur fengið ósanngjarna gagnrýni sem þér fannst þú ekki eiga skilið og ekki eiga við nein rök að styðjast? Eins og t.d. í rökræðum eða jafnvel í einhverskonar rifrildi? Við höfum örugglega öll lent í slíkum aðstæðum þar sem að reiður einstaklingur gagnrýnir mann fyrir eitthvað sem manni finnst maður ekki eiga skilið. Maður bókstaflega titrar af reiði inn í sér og manni langar ekkert meira en að svara í sömu mynt. Það er auðvelt…
Það er ótrúlega gaman að búa sér til hummus til að eiga á heimabakaða brauðið eða jafnvel heimabakaða hrökkbrauðið. Það eru endalausir möguleikar í hummusgerðinni sem er algjör snilld. Auðvelt er að gera hummusinn að sínu og nota þau hráefni sem eru til hverju sinni. Það er einmitt það sem ég gerði núna, notaði það sem var til í ísskápnum og það kom svo vel út að ég ætla að deila uppskriftinni með þér. Þessi hummus er einstaklega bragðgóður og virkilega…
Áttu erfitt með að ráða við matarlanganir þínar og færð óstjórnlega löngun í ákveðnar matvörur? Ástæðan gæti verið að eitthvað sé að angra þig andlega án þess að þú gerir þér kannski grein fyrir því. Það þarf ekki einu sinni að vera að löngunin sé í sælgæti, gæti þess vegna verið t.d. í hnetur eða mjólkurvörur. Oft liggur eitthvað að baki þegar maður hefur óstjórnlega löngun í ákveðnar matvörur. Miklar líkur eru á að maður sé að reyna að hylma yfir andlega…
Einu sinni var ég algjör brauðfíkill og freistaðist ég oft í hvítt, gerjað hveitibrauð eftir að ég fækk fæðuóþolið. Ég get ekki líst því hversu illa mér leið alltaf á eftir, það var bókstaflega eins og það hefði verið keyrt yfir magann minn, kvölin var svo mikil. Fljótt fór ég að læra það að freistingin væri ekki þess virði og leitaði annarra leiða. Síðustu 2 ár hef ég verið dugleg að prufa mig áfram í glútenlausri brauðgerð, maður þarf alls ekki…
Mikil streita í lífi fólks Vinnudagurinn hjá okkur flestum er mjög langur og eru margir að vinna miklu meira en eðlilegt þykir. Það er ekki óalgengt að margir séu í tveimur vinnum af illri nauðsyn til að ná endum saman. Eins getur verið of mikið álag á vinnustöðum þar sem mikill sparnaður ríkir. Það er því óneitanlegt að atvinna getur verið mikill streituvaldur í lífi fólks. Þegar maður er að vinna mikið er það kannski ekki efst í huga hjá…
Janúar mánuður getur verið mörgum erfiður hér á landi. Jólin eru tekin niður og öll björtu jólaljósin eru sett ofan í kassa. Desember er mikill samverumánuður og getur janúar verið ákveðin skellur sem inniheldur gjarnan tómleika og depurð. Það er myrkur meiripart dagsins og er það heitasta ósk margra að skella sér til sólarlanda á þessum tíma. Þó ég viti hvað ég þarf að gera til að vera í jafnvægi þá geta komið dagar eða jafnvel tímabil þar sem ég er…
Desembermánuður einkennist oft af miklum hraða og ætlar maður sér stundum fullmikið fyrir jólin. Maður er á hlaupum milli allskyns hittinga eins og t.d. jólahlaðborða, vinahittinga og jólaboða. Þess á milli eru jólagjafirnar græjaðar, jólakortin skrifuð, smákökurnar bakaðar, jólahreingerningin framkvæmd og ýmislegt fleira sem snýr að undirbúningi og hefðum jólanna. Hlúðu að sjálf-ri/um þér Stress og kvíði geta náð yfirhöndinni þegar maður er mikið á hlaupum og er mikilvægt að koma í veg fyrir það. Það ert þú sem ert…
Ég geri mér reglulega rauðrófusafa úr fallegu safavélinni minni. Ég nota nú aldrei neina sérstaka uppskrift, týni bara eitthvað í hann sem ég á í ísskápnum og mig lystir í hverju sinni. En ég ákvað að skrifa niður uppskrift til að deila með þér, kæri lesandi, og vona ég að þér líki vel. Rauðrófusafi …









