Í nokkra mánuði datt ég alveg úr gír hvað hollan lífsstíl og mataræði varðar. Ég festist í vítahring þar sem ég var alltaf þreytt og borðaði fæðu sem gerði mig ennþá þreyttari. Líkamleg og andleg vanlíðan var mikil og var eins og mér hefði verið bókstaflega kippt úr sambandi.
Að festast í vítahring
Ástæðan fyrir því að ég datt úr gír til að byrja með er að ég geng með mitt fyrsta barn og voru fyrstu mánuðir meðgöngunnar mér líkamlega erfiðir. Mér var stöðugt óglatt, var mjög þreytt og það versta var að ég hugsaði ekki um annað en að borða unna matvöru. Ég féll í þá gryfju að fæða þessa líkamlegu vanlíðan með unnum mat og varð það að bolta sem fór að rúlla. Ég stalst aðallega í unnin kolvetni og mjólkurvörur sem varð nóg til þess að ég festist í vítahring þar sem ég gerði það aftur næsta dag og næsta o.s.frv. Þar sem að ég er með mikið fæðuóþol get ég ekki borðað hvað sem er án þess að fá að gjalda fyrir það í formi mikillar vanlíðunar. Ég varð þreyttari en áður, fékk magakrampa á nóttunni, varð meira óglatt og satt að segja alveg ómöguleg. Ég varð eins ólík sjálfri mér og mögulega hægt er. Ég lá aðallega í sófanum að horfa á sjónvarpið í frítíma mínum og hætti t.d. að blogga, hreyfa mig, hitta fólk, lesa bækur og hef aldrei verið eins löt í eldhúsinu. Mig langaði ekkert í fæðu sem lætur mér líða vel og þurfti ég að hálfpartin að pína hana ofan í mig. Ég hætti að gera allt það sem mér finnst skemmtilegt og það sem lætur mér líða vel.
Að átta sig á áhrifum mataræðis
Þú þarft ekki að vera með fæðuóþol eins og ég til þess að upplifa þennan vítahring. Þegar maður borðar unna fæðu eins og t.d. skyndibita og gos þá verður maður orkulaus, jafnvel án þess að taka eftir því. Sumum finnst það eðlilegt að fara í gegnum daginn svoleðis því þeir þekkja ekki annað. Maður tekur í rauninni ekki eftir því fyrr en maður hættir alveg að borða ruslfæði og skiptir yfir í hreint fæði. Ég man að áður en ég fékk fæðuóþolið var ég alltaf þreytt og gat ekki lesið nokkrar bls. án þess að sofna ofan í bókina. Mér fannst þetta bara eðlilegt á þeim tíma og taldi mig borða frekar venjulega fæðu. Eftir að ég fór síðan að skilja hvað hrein og holl fæða er í raun og veru varð líðanin allt önnur. Maður verður svo miklu skýrari í hugsun, manni líður betur, verður minna þreyttari og þ.a.l. orkumeiri. Svo þegar maður prufar að borða ruslfæðið aftur þá sér maður hversu mikil áhrif það hefur á andlega og líkamlega heilsu manns. Þar sem ég hef sniðgengið unninn mat í langan tíma þá þarf ég talsvert minna en aðrir til að fá að sjá hversu mikil vanlíðan fylgir því að borða unninn mat. Ég þarf ekki að borða nema eina flatköku með smjöri (Er með glúten – og mjólkuróþol) til þess að verða alveg ómöguleg.
Þú berð ábyrgð, enginn annar
Þó að upphaf vítahringsins hjá mér hafi vissulega verið fyrstu mánuðir meðgöngunnar get ég ekki skrifað þetta á það þó að löngunin í unninn mat hafi vissulega verið sterkari en áður. Ég hef alltaf val um að velja það sem er best fyrir mig og það sem lætur mér líða vel. Það er enginn annar en ég sem ber ábyrgð á minni heilsu og minni líðan. Ég valdi það sjálf að detta í þessa gryfju þótt að ég var kannski ekki fullkomlega meðvituð um það þegar það gerðist. Vítahringurinn minn var því sjálfskapaður og því engin leið út úr honum nema að gera það sjálf.
Ég veit að það eru margir í þessum sjálfskapaða vítahring sem ég var í; þar sem maður er alltaf þreyttur og borðar mikið af unni fæðu sem gerir mann ennþá þreyttari. Líkamleg og andleg vanlíðan bætist oft við í hópinn og er erfitt að stíga upp úr þessu.
Að koma sér aftur í gírinn
Það mikilvægasta af öllu til að koma sér aftur í gírinn er að dæma sig ekki og rífa sig ekki niður. Erfið tímabil í lífi okkar eru bara til að kenna okkur lexíur. Þakkaðu fyrir lærdóminn og stattu upp fyrir sjálfum þér. Elskaðu þig það mikið að þig langi að kaupa hollt og hreint fæði sem fær þig til að blómstra. Hollt fæði er fjárfesting sem þú munt ekki sjá eftir, trúðu mér. ÞÚ átt skilið að upplifa allt það besta sem lífið hefur upp á að bjóða og til þess þarf maður að hugsa vel um heilsuna. Það er mikilvægt að taka lítil skref þegar maður ákveður að hefja betri og bættari lífsstíl. Ef maður ákveður að breyta öllu í sömu vikunni gefst maður upp og sekkur ennþá dýpra í gamla farið.

Ég hef risið upp úr sófanum og hef loksins tekið ábyrgð á mataræði mínu á ný. Það er mikill spenningur í gangi að takast á við foreldrahlutverkið og er ég gríðarlega þakklát fyrir að eiga von á mínu fyrsta barni. Ég ætla að leggja mig alla fram að borða holla og góða fæðu til að litla krílið sem er í maganum á mér vaxi og dafni sem best á meðgöngunni. Hreyfing, hrein fæða og huga að andlegu heilsunni spilar allt saman til að vera í jafnvægi.
-Anna Guðný




No Comments