Ég hef áður bloggað um chiagraut og hversu gott mér finnst að fá mér hann á morgnanna eða fyrir ræktina. Um helgar finnst mér einkar gott að hafa hann í algjörri lúxusútgáfu og set ég þá karmellu á hann. Ég set ekki karmellu á hann á virkum dögum nema ég sé alveg sérstaklega góð við sjálfa mig.
Það er mjög mikilvægt að vera duglegur að fá sér chiagrautinn í ýmsum útgáfum svo maður fái ekki leið á honum. Þið getið haft eftirfarandi í huga:
- Setja t.d. ekki alltaf sömu ávextina í hann á hverjum degi. Epli, perur, ananas, mango og/eða ber til dæmis. Bara hvað sem ykkur dettur í hug.
- Eins er hægt að leika sér með kanill, vanillu og kakó, setja mismikið af hverju eða bara eitt af þessum þremur.
- Einnig eru þurrkuð ber alltaf góð með þessu og set ég alltaf gojiber í grautinn minn enda eru þau einstaklega holl og góð fyrir okkur. Mórber eru einnig mjög góð í grautinn.
- Ef þið þolið haframjöl getiði bætt því í grautinn til að hann verði meiri fylling í magann, ég mæli þó með því að hafa það glútenlaust (merki sem heitir urtekram í nettó og krónunni)
- Skella á hann karmellu þegar maður vill gera vel við sig.
- Svo er hægt að setja kókosflögur, kakónibbur og fræ.
Grauturinn í dag er bara örlítið frábrugðin þeim sem ég bloggaði um síðast.
Chiagrautur
- 250 ml möndlumjólk (helst heimagerð)
- 2 msk chia fræ
- 1 msk hampfræ (má sleppa)
- 1 msk fínt kókosmjöl
- 3/4 tsk kakó
- 1/2 tsk kanill
- hnífsoddur sjávarsalt
Ég setti jarðaber og bláber í annan grautinn og epli og bláber í hinn. Ég setti svo kókosflögur, gojiber og karmellu ofan á. Mér finnst einnig mjög gott að setja kakónibbur í grautinn en átti þær ekki til núna.
Eins ef ég á ekki möndlumjólk þá set ég 50 ml af kókosmjólk í fernu á móti 100 ml af vatni.
Karmella:
- 2 msk gróft hnetusmjör
- 2 msk kókosolía
- 1/2 msk hunang
- hnífsoddur af salti
- smá vanilla
Njótið vel og verði ykkur að góðu <3
1 Comment
Hæ Anna,
Flottar uppskriftir!Kær kv.Betty