Ég elska haustið svo mikið því að þá er svo gott úrval af íslensku grænmeti í búðunum og vildi ég óska þess að þetta væri svona allan ársins hring. Það er alls ekki á hverjum degi sem að allt grænmetið á disknum er íslenskt en það skiptir okkur miklu máli að kaupa íslenskt gæðahráefni. Ég keyri stundum langar leiðir til að þefa uppi íslenskt hráefni og dreymir mig um að geta ræktað mitt eigið grænmeti einn daginn. Kúrbítsnúðlur 1/2 kúrbítur 1…
Það er fátt betra en að ylja sér á heitri súpu þegar kólna fer í veðri og ætla ég því að deila með þér uppskrift af fallegri og bragðgóðri rauðrófusúpu. Ég veit að mörgum hryllir við rauðrófum en mér finnst þær algjört lostæti. Þegar að þær eru eldaðar verða þær bæði sætar og safaríkar ásamt því að moldarbragðið hverfur. Rauðrófur búa yfir frábærum eiginleikum fyrir heilsuna en ég hef einmitt fjallað um það áður og getur þú lesið þér til um…
Þetta er uppáhalds kvöldmaturinn minn í augnablikinu og er ég lengi búin að vera á leiðinni að blogga um hann til að geta deilt honum með þér. Þegar að ég elda pottrétti eins og þennan, þá geri ég alltaf stóran skammt og frysti afganginn, þá á ég eitthvað í kvöldmatinn í frystinum til að grípa í þegar að ég er ekki í stuði til að elda. Grænmetiskarrý Pottur 1 – stór fyrir allan réttinn 200 g rauðlaukur 300g rauð paprika…
Það þarf ekki að vera neitt merkilegt og flókið í kvöldmatinn. Það má alveg útbúa eitthvað fljótlegt og þægilegt sem er gott. Maður heldur svo oft að maður þurfi að hafa svaka hugsun á bakvið kvöldmatinn og mikil vinna. En fyrir mér er eina markmiðið með kvöldamatnum að fá inn holla og góða næringu. Þar sem að ég hef ekki alltaf mikinn tíma til að útbúa kvöldmat þá finnst mér voða gott að henda í fljótlega og holla máltíð sem…
Mér finnst algjör snilld að eiga kökur eins og þessar til í frystinum og geta gripið með mér þegar að ég veit að ég verð á flækingi yfir daginn. Þessar reyndar komust aldrei í frystinn því þær kláruðust svo hratt, en markmiðið er að gera annan skammt og eiga í frystinum til að grípa í þegar maður fer á flakk í sumar. Það þarf þó alls ekkert að frysta þær, ég vil bara eiga byrgðir af mat í frystinum til að grípa…
Þegar sólin er á lofti og heitt er í veðri langar mig undantekningalaust í ís. Ég hef margoft dottið í þá gryfju að enda inn í íssbúð að kaupa mér ís og svo liðið illa á eftir vegna þess hve mjólkurvörur og unnin sæta fara illa í mig. Lausnin á þessu er að eiga góðan ís í frystinum eða að búa hann til í snatri. En að þessu sinni ætla ég að deila með þér uppskrift að mangó og appelsínusorbet…
Þessa hráfæðisköku er ég búin að hafa í hausnum mjög lengi en lét loksins verða að því að gera hana. Hún er fáranlega góð þó ég segi sjálf frá. Hún er ekki of súr en heldur ekki of sæt, fullkomlega fersk og góð. Ég ákvað að gera litla uppskrift vegna þess að hráefnið er dýrt í hana og myndi ég segja að þetta sé mátuleg stærð fyrir 3-4 manns. En þér er frjálst að stækka uppskriftina ef þú vilt hafa…
Ég elska að finna leiðir til að njóta allskyns góðgætis sem er laust við mjólkurvörur, unna sætu og glúten. Það skiptir mig miklu máli að vita hvað ég er að láta ofan í mig og er það mér mikilvægt að búa matinn minn til sjálf. Það vissulega kostar mann meiri fyrirhöfn en að fara að kaupa sér tertusneið á kaffihúsi en það skilar sér margfalt í betri líðan. Ég er algjör sælkeri og mun ég alltaf vera opin fyrir leiðum til…
Ég get ekki lýst því hversu vel mér líður þegar ég byrja daginn á jóga og geri mér síðan grænan þeyting strax í kjölfarið. Það er svo magnað að sjá hvað líkaminn er stöðugt að gefa manni vísbendingar um hvaða fæðu maður á að láta ofan í sig. Ég fæ mjög oft sterka löngun í grænan þeyting því að mér líður svo vel af honum. Það er mér mikilvægt að breyta til í mataræðinu og að vera ekki alltaf að…
Fyrst eftir að ég hætti að borða mjólkurvörur saknaði ég oft að fá mér smjör og ost og hef ég margoft stolist í það. En þegar ég fór að vera dugleg að útbúa mér hummus þá lærði ég að það er bara vel hægt að komast í gegnum lífið án þess að klína smjöri á allt. Það er mjög ódýrt að útbúa sér hummus og tekur það enga stund. Ég kaupi kjúklingabaunir ósoðnar út í búð þar sem að það…








