Það er nú ekki hægt að bjóða desember velkomin án þess að eiga góðar súkkulaðibitakökur. Ég elska að fá mér þessar súkkulaðibitakökur með ískaldri möndlumjólk yfir góðri jólamynd. En ég verð alltaf að horfa á The Holiday og Jólaósk Önnu Bellu fyrir hver jól, það eru klárlega mínar uppáhalds jólamyndir. Þessar smákökur eru vegan, glútenlausar og án unnar sætu. En það þýðir þó samt ekki að maður eigi að missa sig og borða þær í öll mál alla daga vikunnar.…
Ég gæti skrifað heila bók um það hversu mikið ég elska sörur og hversu stóran part þær spila í jólastemminguna hjá mér. En ég er hæstánægð með útkomuna á sörunum í ár og eru þær dásamlegar á bragðið. Þessi uppskrift er laus við unninn sykur ásamt því að vera glútenlaus og vegan. Það skiptir mig mjög miklu máli að geta notið alls konar góðgætis þrátt fyrir að ég sniðgangi margt í fæðunni. Ég legg mikið á mig að útbúa uppskriftir…
Snilldin við hrákökur Hrákökur eru í miklu uppáhaldi hjá mér því að það er hægt að leika sér endalaust með þær. Það er líka mjög fljótlegt og þægilegt að útbúa þær. En það sem að mér finnst best við þær er að þær geymast í frysti en þeir sem hafa lesið nokkrar uppskriftir frá mér vita að ég er aldrei glaðari en þegar ég á fullt af góðgæti til í frystinum. Það er virkilega sniðugt að eiga hráköku í frystinum…
Ég þurfti að gera þetta hjartnæma súkkulaði mjög oft áður en ég náði loksins að festa það á mynd. Það kláraðist nefnilega alltaf mjög hratt enda er það fáranlega gott. Það hefur vakið mikla lukku og meira að segja á meðal þeirra sem að ég bjóst alls ekki við að finnast það gott. Ég elska að bjóða gestum upp á heimagert súkkulaði og slær það alltaf í gegn. Eins er mjög hjartnæmt að gefa einhverjum sem manni þykir vænt um…
Mér finnst algjör snilld að eiga kökur eins og þessar til í frystinum og geta gripið með mér þegar að ég veit að ég verð á flækingi yfir daginn. Þessar reyndar komust aldrei í frystinn því þær kláruðust svo hratt, en markmiðið er að gera annan skammt og eiga í frystinum til að grípa í þegar maður fer á flakk í sumar. Það þarf þó alls ekkert að frysta þær, ég vil bara eiga byrgðir af mat í frystinum til að grípa…
Þegar sólin er á lofti og heitt er í veðri langar mig undantekningalaust í ís. Ég hef margoft dottið í þá gryfju að enda inn í íssbúð að kaupa mér ís og svo liðið illa á eftir vegna þess hve mjólkurvörur og unnin sæta fara illa í mig. Lausnin á þessu er að eiga góðan ís í frystinum eða að búa hann til í snatri. En að þessu sinni ætla ég að deila með þér uppskrift að mangó og appelsínusorbet…
Þessa hráfæðisköku er ég búin að hafa í hausnum mjög lengi en lét loksins verða að því að gera hana. Hún er fáranlega góð þó ég segi sjálf frá. Hún er ekki of súr en heldur ekki of sæt, fullkomlega fersk og góð. Ég ákvað að gera litla uppskrift vegna þess að hráefnið er dýrt í hana og myndi ég segja að þetta sé mátuleg stærð fyrir 3-4 manns. En þér er frjálst að stækka uppskriftina ef þú vilt hafa…
Ég elska að finna leiðir til að njóta allskyns góðgætis sem er laust við mjólkurvörur, unna sætu og glúten. Það skiptir mig miklu máli að vita hvað ég er að láta ofan í mig og er það mér mikilvægt að búa matinn minn til sjálf. Það vissulega kostar mann meiri fyrirhöfn en að fara að kaupa sér tertusneið á kaffihúsi en það skilar sér margfalt í betri líðan. Ég er algjör sælkeri og mun ég alltaf vera opin fyrir leiðum til…
Ef ég mætti ráða þá væru allir dagar nammidagar en það er búið að vera svolítið svoleiðis fílingur á heimilinu í fæðingarorlofinu, það eru allir dagar laugardagar hjá okkur. Þar sem að ég sniðgeng unninn sykur (eins og t.d. hvítan sykur og hrásykur), glúten og mjólkurvörur – þá bý ég til mitt eigið nammi til að eiga þegar að mig langar í nammi. Auðvitað er það nammi ekki hollt sem slíkt og á að borða í hófi líkt og annað nammi.…
Þennan ís gerði ég á dögunum og kom hann ótrúlega vel út. Hann er svo ferskur og góður og fullkomið jafnvægi ríkir á milli súra og sæta bragðsins. Ég nota ísvél til að búa hann til og finnst mér hún algjörlega nauðsynleg til þess að geta gert þennan ís. Ég hef reynt margoft að gera mjólkurlausa ísa án ísvélar og það hefur ekki heppnast vel hjá mér. Ísvélin mín kostaði ekki mikið á sínum tíma og þarf maður enga svaka…







