Fyrstu kynni mín af snyrtivörum voru klárlega að fara í naglalökkun til ömmu minnar og nöfnu þegar ég var yngri. Það var alltaf voðalega fullorðins og spennandi að koma heim með fallegar rauðar neglur. Ég hef síðan gert það sama við litlu frænku mína og haft gaman af. Nýverið hef ég hinsvegar mikið verið að hugsa út í hvað er í raun og veru í naglalökkunum okkar og hvort þau séu okkur skaðlaus. Niðurstöður nýrrar rannsóknar sem gerð var af EWG (Environmental…
Allflestar uppskriftir af súkkulaðiþeytingum sem hafa orðið á vegi mínum innihalda banana. Þar sem bananar fara frekar illa í mig ákvað ég að taka málin í mínar hendur. Ég hef verið með hugmynd af súkkulaðiþeyting í kollinum lengi og ákvað loksins að skella henni í blandarann. Það tókst mjög vel og var niðurstaðan vonum framar. Þá er í rauninni ekki eftir neinu öðru að bíða en að deila uppskriftinni með þér. Súkkulaðiþeytingur …
Það er ótrúlega magnað þegar maður áttar sig á, og skilur, að allir sem koma inn í líf þitt eru hér til að kenna þér mikilvægar lexíur um sjálfan þig. Þetta lærði ég í þerapíunni, Lærðu að elska sjálfa/n þig hjá Guðbjörgu Ósk Friðriksdóttur. Ósk sagði við mig að: ,,Allir sem koma inn í líf þitt eru komnir til að kenna þér og hjálpa þér að skilja hver þú ert, hvar þú ert stödd/staddur og hvernig þú ert. Þegar þú skilur…
Hér í Danmörku stendur yfir viku vetrarfrí svo að ég er að nýta tímann vel í að búa til nokkrar uppskriftir á meðan ég hvíli mig frá námsbókunum. Hér er ein þeirra, gómsætar hafrakúlur sem eru tilvaldar til að narta í milli mála. Það er mjög einfalt að búa þær til og tekur það alls ekki langan tíma. Hafrakúlur …
Nú veit ég ekki hvort að þú hafir náð að byrgja þig upp af bláberjum fyrir veturinn, þau eru svo sannarlega fjársjóður og sífellt erfiðara að finna vegna slæms veðurfars. Ég missti af bláberjatímabilinu heima í ár vegna flutninga svo ég veit ekki hvort það hafi verið góð uppspretta. En síðustu sumur hef ég pínt fjölskyldumeðlimi með mér í berjamó og er ég svo þrjósk að ég neita að fara heim fyrr en ég er komin með ágætan skammt í…
Lækningamáttur túrmeriks Túrmerik er indversk lækningajurt sem hefur marga og jákvæða eiginleika fyrir heilsuna okkar. Fjölmargar rannsóknir hafa verið birtar sem gefa til kynna að túrmerik sé með gríðarlegan lækningamátt. Það er t.d. bólgueyðandi og er stútfullt af andoxunarefnum. Það hefur haft jákvæð áhrif á þunglyndi, streitu, hjartasjúkdóma, parkinson, alzheimer, krabbamein og liðagigt. Það er sífellt að færast í aukanna að fólk kynni sér óhefðbundnar lækningar sem meðferðarúrræði á sjúkdómum. Túrmerik hefur verið mjög árangursríkt í sambandi við krabbamein. Það hefur…
Segjum sem svo að þú sért að versla í matinn og þú standir í morgunkornadeildinni þar sem úrvalið er gríðarlegt. Þú vilt ekki kaupa sykrað morgunkorn eins og t.d. Lucky Charms eða Cocoa Puffs, heldur eitthvað hollt og gott fyrir barnið þitt. Þú rekur augun í morgunkornspakka þar sem stendur ,,100% Natural’’ ásamt því að það er mynd af sveitabæ á pakkanum. Kaupir þú þetta morgunkorn? Hvað þýðir að varan sé ,,náttúruleg“? Flestir myndu kaupa þetta morgunkorn í þessum aðstæðum…
Það er ekki svo langt síðan að ég hélt ég væri rosalega holl þegar ég skellti spínati í blandaran ásamt helling af ávöxtum. Ég hélt að ávextir væru svo hollir að ég gæti borðað þá í öll mál og mikið af þeim. Síðar komst ég að því að þetta væri bara ekki rétt hjá mér, græni ofurdrykkurinn minn var ekkert svo mikið ofur eftir allt saman. Ávaxta skal neyta í hófi þar sem þeir innihalda ávaxtasykur sem líkaminn vill ekki fá…
Við ÍSlendingar erum örugglega með met í fjölda ísbúða og eru alls ekki öll lönd með ísbúðir opnar allt árið eins og hér heima. Ég er ein af þeim sem er gjörsamlega sjúk í ís og gæti borðað hann í öll mál ef það væri í boði. Það erfiðasta við að hætta að borða mjólkurvörur var að missa ísinn, að mínu mati. Þar kom ísvélin mín til bjargar og elska ég að tilraunast með hana. Hér er ég með uppskrift…
Tilfinningar, hugsanir og hvernig þú talar hefur miklu meiri áhrif á líf þitt en þú heldur. Í hvert skipti sem þú talar, hugsar eða hefur tilfinningar um eitthvað, þá festist það betur í vöðva- og vefjaminni líkamans. Undirmeðvitund þín gerir engan greinarmun á því þegar þú ert að hugsa um eitthvað eða þegar þú upplifir eitthvað í raunveruleikanum. Margir hafa djúpa tilfinningu fyrir að ekki eiga skilið né vera þess virði að vera heilsuhraustir, líða líkamlega vel, komast í rétta…










