Andaðu

Það er allt í lagi að vera ekki alltaf 100%

Það er ýmislegt sem ég þarf að huga að til að halda mér í andlegu og líkamlegu jafnvægi. Það sem að ég þarf m.a. að gera er að hreyfa mig, hugleiða, næra mig vel og hugsa jákvætt. Ég er mjög meðvituð um að þetta er það sem ég þarf að gera til að láta mér líða vel. Eftir allt saman er það víst ég sjálf sem ber ábyrgð á minni eigin líðan og enginn annar.

Þó ég viti hvað ég þarf að gera til að vera í jafnvægi þá geta komið dagar þar sem ég er alveg dofin og geri ekki neitt af því. Þegar að erfiðir dagar banka upp á er mjög mikilvægt að skammast sín ekki fyrir að vera ekki valhoppandi um af gleði. Við eigum öll okkar erfiðu daga þó við séum ekki endilega vör við það í samfélaginu. Í samfélaginu erum við flest sek um að setja upp grímu og láta allt líta vel út á yfirborðinu. Maður flettir í gegnum samfélagsmiðla þar sem allir eru á fullu í ræktinni ásamt því að vera jafnvel að taka þátt í veganúar. Maður sér engar myndir af þeim sem koma sér ekki í ræktina og eru alveg að bugast á myrkrinu sem er yfirvofandi í janúar. Þarna er algjör glansmynd sem er birt af lífinu og er því mjög mikilvægt að detta ekki í þá gryfju að fara að bera líf sitt saman við þessar glansmyndir. Það er jafn óraunhæft og að ætla að bera líf sitt saman við einhverja bíómynd.

4f900e54Á erfiðum dögum finnst mér mikilvægt að hlúa vel að sjálfri mér. Eins og til dæmis með því að:

  • Fara í heitt bað með góðum ilmkjarnaolíum, kertaljósum og rólegri tónlist.
  • Lesa eða hlusta á góða og uppbyggilega bók getur fyllt mann af hvatningu og hjálpað manni að vera jákvæðari.
  • Fara út í göngutúr í fallegri náttúru, það getur gjörsamlega fyllt á orkuna hjá mér. Sniðugt er að hlusta á hvetjandi bók í göngutúrnum.
  • Prjóna eða önnur handavinna er mjög góð leið til að róa hugann, mjög góð hugleiðsla.
  • Vera í kringum fólk sem mér líður vel í kringum.
  • Tala við einhvern sem ég treysti ef það er eitthvað sérstakt sem er að angra mig.

Þegar þú átt erfiðan dag skalt þú líta til baka og sjá hvaða erfðileika þú hefur komist í gegnum í lífinu. Þú lifðir alla þessa erfiðleika af í 100% tilvika, annars væriru sennilega ekki hér í dag – reynslunni ríkari. Eftir alla þá sigra í lífinu hefur þú staðið upp með bakið breitt og miklu sterkari fyrir vikið. Hrósaðu þér fyrir það og notaðu það sem hvatningu til að rífa þig upp.

Eftir erfiðan dag eða getur leiðin jú aðeins legið upp á við. Maður kemur tvíefldur til leiks og er tilbúin/n að takast á við komandi áskoranir. Ég nota erfiða daga sem stökkpall til að gera enn betur næsta dag og kem ég tvíefld til leiks. Ég lít á erfiða daga sem einskonar fundi við sjálfan mig þar sem ég fer yfir málin með sjálfri mér. Það er margt sem ég uppgötva á erfiðum dögum og læri ég mjög mikið af þeim.

Ef að erfiðu dagarnir eru fleiri en þeir góðu og þú ert ekki fær um að takast á við þá á eigin spýtum er mikilvægt að leita sér hjálpar. 

You Might Also Like

No Comments

Leave a Reply