Það er mikið fagnaðarefni hvað það hefur orðin mikil vitundarvakning hvað andlega kvilla varðar í samfélaginu. Það á engin að þurfa að skammast sín fyrir að líða illa andlega enda er það alls ekkert til að skammast sín fyrir. Það á ekki að vera neitt feimnismál að vera kvíðin eða þunglyndur, ekki frekar en að vera fótbrotinn. Því fleiri sem koma fram og tjá sig um andleg veikindi, því færri skammast sín fyrir þau og þau verða minna feimnismál í samfélaginu.
Við búum á lítilli eyju úti á hafi og það er lítill partur ársins þar sem við fáum sól og blíðu. Á veturna keyrum við í vinnuna/skólann í myrkri og á versta tímabilinu er myrkur þegar við keyrum heim aftur. Það er því kannski ekki að undra að það séu margir þunglyndir og haldnir kvíða hér á landi. Það getur hinsvegar margt fleira legið að baki vanlíðan og depurð fólks, spurningin er; erum við að takast rétt á við hlutina?
Sagan mín
Sjálf hef ég glímt við þunglyndi og kvíða og hafa komið nokkur tímabil í lífi mínu þar sem ég hef verið mjög langt niðri. Eitt sinn var ég orðin virkilega hrædd við sjálfa mig, ég kom mér ekki á fætur á daginn og hugsanir mínar voru orðnar virkilega ljótar. Ég hafði samband við lækni og viti menn, ég var komin með þunglyndislyf í næsta apóteki sama dag. Það var ekki flóknara en það. Ég hinsvegar tók lyfin í nokkra daga og hætti svo, mér fannst eitthvað svo rangt að vera taka þetta inn. Ég var fullviss um að ég gæti snúið við blaðinu sjálf. (Það er víst stranglega bannað að hætta á lyfjunum án samráðs við lækni, maður þarf að trappa sig hægt og rólega niður af lyfjunum.)
Sama ár fór ég á Dale Carnegie námskeiðið sem hjálpaði mér mjög mikið. Mér kveið samt hrikalega mikið fyrir hverjum einasta tíma því maður þurfti að fara langt út fyrir þægindahringinn sinn. Ég var samt alls ekki dugleg að nota lögmálin eftir námskeiðið, það var eins og ég hafði tekið allt sem ég lærði þar og grafið það niður. Námskeiðið var mjög krefjandi fyrir mig og var eins og ég hafi pínt mig í gegnum það og ekki hugsað um annað hversu gott það væri þegar það yrði búið. Eftir námskeiðið var ég ennþá upp og ofan og komst ekki í jafnvægi.
Tveimur árum seinna var ég að læra undir inntökuprófið í læknisfræði, átti lítinn pening og var mjög kvíðin fyrir prófinu. Kvíðinn var gjörsamlega að éta mig upp og ég var komin mjög langt niður. Ég fór á bráðamóttöku geðdeildar og vildi fara á lyf. Ég hugsaði með mér að það væri greinilega ekki hægt að græja þetta þunglyndi sjálf. Ég er mjög þakklát fyrir að geðlæknirinn þar sagðist vilja fá mig í hugræna atferlis meðferð og lyf væru alls ekki fyrsta úrræði fyrir mig. Gallinn var sá að það var ekki laust á þetta námskeið fyrir mig strax, svo þegar ég loksins komst að þá guggnaði ég og fór ekki.
Að vinna í sjálfum sér
Seinna sama ár fór ég að hitta þerapistann Guðbjörgu Ósk Friðriksdóttur og fór hjá henni í þerapíuna Lærðu að elska þig sem gjörsamlega kenndi mér að lifa upp á nýtt. Þessi þerapía hefur kennt mér svo skýrt hvernig ég get hjálpað mér sjálf með andlega- og líkamlega líðan mína. Ósk hjálpaði mér að vinna með rót vandans og útskýrði fyrir mér af hverju hinir ýmsu hlutir í lífi mínu væru eins og þeir væru. Allt virkaði svo einfalt eftir að ég byrjaði í þessari þerapíu og ég sveif um á bleiku skýji. Ég lærði að skilja að allt sem gerist í lífinu á að gerast og ef það er erfið reynsla sem við verðum fyrir er hún til að kenna okkur eitthvað. Ég er orðin miklu lífsglaðari, jákvæðari og stóri plúsinn er að þunglyndið og kvíðinn er næstum bæði horfið. Ég kann miklu frekar að tækla það núna en áður ef það bankar uppá.
Ég fann það fljótt að áfengi væri alls ekki að hjálpa mér með kvíðann og þunglyndið. Eitt af því versta sem maður getur gert sér þegar maður er kvíðinn og þunglyndur er að drekka ofan í það. Vanlíðanin margfaldast og það er algengt að maður flýji veruleikann í áfengið. Eins flúði ég mikið í unninn sykur og hann hjálpaði mér alls ekki neitt heldur. Með því að flýja vandamálið í áfengi, sykur og fl. þá er maður bara að deyfa sig frá sársaukanum, það er engin lausn í því og gerir bara illt verra.
Það er algengt að maður sjái ekki vandamálið og að þú sért sá sem getur leyst það. Það getur verið erfitt að kyngja því að maður axli sjálfur ábyrgðinni á sinni eigin líðan. Það er auðveldara að benda á að maður sé með sjúkdóm og þurfi þ.a.l lyf við honum. Því finnst mér nauðsynlegt og algjört lykilatriði að maður vinni með rót vandans. Læra hvernig maður ætlar að tækla kvíðan og þunglyndið í daglega lífinu og að sigra það fyrir rest. Það er mikill léttir, að bæði vita og skilja, að ég sé sú eina sem get breytt til hins betra þegar eitthvað er að angra mig líkamlega og andlega. Það er enginn annar en ég sjálf að fara að koma og breyta aðstæðunum. Með því að hlusta á innsæið mitt er ég ávallt leidd áfram í rétta átt og veit hvað ég þarf að gera hverju sinni.
Ég ber ábyrgð á minni líðan
Ég er mannleg og alls ekki fullkomin, það kemur alveg fyrir að ég nenni engu og er alltof “góð“ við sjálfa mig. Þá fæ ég það bara í bakið og verð ennþá ákveðnari að gera betur næsta dag. Ég finn það enn þann dag í dag að skammdegið leggst stundum mjög illa í mig. Það koma dagar þar sem ég væri helst til í að búa í helli lengst uppi í fjalli og sofa allan daginn. Einnig get ég verið mjög kvíðin fyrir ótrúlegustu hlutum. Eins og t.d. að fara í búðina, panta mér tíma einhversstaðar, fara í ræktina og stundum bara að fara út úr húsi yfir höfuð. Stundum koma kvíðaköstin upp úr þurru þegar ég reyni að sofna á kvöldin, fer öll á ið, á erfitt með að róa mig niður og fæ magakrampa.
Svona köstum fer fækkandi og fer mér stöðugt fram. Það er virkilega auðvelt að láta hugann stjórna sér í þessum tilvikum og „leyfa“ honum að láta mann kveljast. Þetta fer algjörlega eftir því hversu mikið ég hugsa um sjálfa mig, maður uppsker eins og maður sáir. Það sem er nefnilega svo merkilegt er að líðan mín fer algjörlega eftir mér, ég stjórna þessu sjálf. Hver og einn þarf að finna út hvað hentar manni best og hvað lætur manni líða vel.
Það eru ákveðnir hlutir sem ég þarf að gera til að halda mér góðri og það er mikill léttir að geta stjórnað þessu sjálf. Ég þarf m.a. að gera eftirfarandi:
- Borða hreina og holla fæðu alla daga ársins.
- Hugleiða á hverjum degi.
- Hreyfa mig reglulega.
- Taka inn þau bætiefni sem ég þarf.
- Anda ofan í maga ef ég fæ kvíðakast.
- Hafa ekki allt í drasli; hvorki í hausnum á mér né í kringum mig.
Mataræðið hefur mikil áhrif á andlega líðan mína
Eftir að ég fór að verða meðvitaðari um líðan mína, bæði andlegu og líkamlegu, tók ég eftir tengslum á milli mataræðis og andlegrar líðan. Ef ég borðaði ekki hreina og holla fæðu hafði það alveg jafn mikil áhrif á andlegu líðan mína eins og þá líkamlegu. Ég er með mikið fæðuóþol og hef fengið að sjá það mjög skýrt að þegar ég borða eitthvað sem ég hef óþol fyrir eins og t.d. mjólkurvörur, glúten eða unninn sykur koma áhrifin alveg jafn mikið fram andlega og líkamlega. Þetta spilar allt saman.
Hvað þarft þú að gera til að láta þér líða vel?
Trúðu mér það er ekki nýr bíll, nýr maki, nýjir hlutir eða nýtt hús. Það er eitthvað sem þú þarft að gera sjálfur, þetta krefst vinnu, það er enginn að fara gera þetta fyrir þig nema ÞÚ sjálfur. Þessi vinna verður svo vel þess virði og ég vona að þessi pistill hjálpi einhverjum þarna úti.
Ást og friður <3





2 Comments
Þessi póstur fékk mig til að senda tölvupóst til sálfræðings og panta hjá honum tíma.
Ég er búinn að eiga tölvupóstfangið í 9 mánuði en einhvernveginn ekki séð tilganginn með neinu, hvað þá að þora að leita mér hjálpar.
Takk.
Vá takk kærlega fyrir að deila þessu með mér! Gangi þér ofboðslega vel með framhaldið 🙂