Ég hef verið með erfiða húð frá því ég var 11 ára. Bólur, fílapensla, þurrkubletti – bara nefndu það. Ég hef alltaf hugsað vel um húðina en hef ekki náð að halda henni góðri. Ég fór til húðlæknis fyrir u.þ.b þremur árum sem lét mig fara á bæði lyf og sterakrem. Húðin skánaði meðan ég notaði lyfið og kremið en allt blossaði upp aftur þegar ég átti að fara að trappa mig niður á lyfjunum. Mér fannst svo rangt að taka lyf til að koma húðinni í lag. Sterakremið mátti t.d. ekki komast í snertingu við föt vegna þess að þá myndu þau aflitast. Hversu mikið eitur? Og þetta átti ég að setja á húðina á mér! Þetta ferli kostaði mig mjög mikinn pening og var engin langvarandi lausn. Þetta er því miður algengasta meðferðin við húðvandamálum hér á landi.
Sterakrem í morgunmat?
Húðin er stærsta líffæri mannsins og það sem þú setur á hana fer beint inn í blóðrásina og hefur þ.a.l. áhrif á líkamsstarfsemina þína. Það er greið leið fyrir kemísku efnin beint úr snyrtivörum og inn í líkama þinn. Það sem þú berð á húðina áttu alveg eins að geta borðað. Það er meira að segja verra fyrir líkamann að setja eitrið á húðina heldur en að borða það. Við meltum matinn áður en hann fer í blóðrásina en snyrtivörur fara beinustu leið úr húðinni yfir í blóðrásina.
Lestu á innihaldslýsingarnar og taktu meðvitaðar ákvarðanir.
Það er mjög mikilvægt að vera vakandi fyrir innihaldslýsingum á snyrtivörum og öllu því sem þú berð á húðina. Þetta gildir yfir allar snyrtivörur, hvort sem það er tannkrem, sjampó, svitalyktareyðir eða förðunarvörur. Fyrir mig persónulega, vil ég vita hvað er í vörunni og helst þekkja meirihlutan af innihaldsefnunum. Alveg eins og þegar maður kaupir matvörur þá er mjög mikilvægt að lesa á innihaldslýsingar til að vita hvað er í vörunni. Afhverju ætti ég að bera skaðleg efni á húðina á mér þegar ég legg mig alla fram við að forðast þau í matvælum?
Það sem þú veist ekki, eða það sem er virkilega verið að reyna að fela fyrir þér, getur í alvörunni skaðað þig. Áður en þú berð á þig rándýra, lúxuskremið þitt skalt þú lesa á innihaldslýsinguna og ganga úr skugga um að þar séu engin skaðleg efni.
Hvað ber að varast?
Snyrtivörur eru framleiddar úr 10,500 einstökum kemískum innihaldsefnum, sum af þeim eru þekkt eða grunuð fyrir að vera krabbameinsvaldandi, eitruð æxlunarkerfinu eða þekkt fyrir að trufla innkirtlakerfið. Þó að sum fyrirtæki leggja upp úr því að framleiða vörur sem er óhætt að borða, eru önnur sem nota hættuleg innihaldsefni eins og koltjöru og formaldehýð, bæði krabbameinsvaldandi efni hjá mönnum.
Þessi skaðlegu efni geta konur meira að segja borið í ófædd börn sín í gegnum móðurkvið. Eitt af þessum skaðlegu efnum eru t.d. paraben. Þau geta ollið hormónaójafnvægi, hafa verið fundin í brjóstvef og verið tengd við krabbameinsæxli. Ég fann mjög góðan lista frá Enwiromental Working Group, sama teymi og rannsakaði hvað er mikilvægt fyrir okkur að borða lífrænt grænmeti og ávexti. Ég hvet þig til að kynna þér þau skaðlegu efni sem ber að forðast í snyrtivörum hér.
Sjá yfirvöld ekki um að snyrtivörurnar séu öruggar?
Flest notum við snyrtivörur á hverjum degi og trúum að eitthvað æðra vald sjái til þess að það séu engin skaðleg efni í umferð. Ég vildi að sú væri raunin.
Það er ekki krafist þess að kemísk efni iðnaðrins fari í gegnum öryggisprófun. Hvorki þau efni sem fara í snyrtivörur né þau sem fara í efnaiðnaðinn í heild sinni. Samkvæmt skrifstofu snyrtivara og litarefna innan sambands Matvæla- og Lyfjaeftirlitsins segir; “..snyrtivöruframleiðandi má nota næstum hvaða hráefni sem innihaldsefni í snyrtivöru og markaðssetja vöru án samþykkis frá FDA.“ (FDA 2012) FDA gerir ekki kerfisbundið öryggiseftirlit, í staðin heimila þau snyrtivöruiðnaðum að gæta sjálf innihaldsöryggis í gegnum sérstakt spjald. Í yfir 36 ár hefur þetta spjald aðeins bannað 11 innihaldsefni sem eru óörugg í snyrtivörum. (CIR 2012). Til samanburðar, hefur Evrópusambandið bannað hundruð efna í snyrtivörum. (Framkvæmdastjórn Evrópu 2012)
Lífrænar snyrtivörur?
Ég hef áður talað um mikilvægi þess að borða lífrænar matvörur og er það ekkert öðruvísi með snyrtivörur. Úrval lífrænna snyrtivara er að aukast gríðarlega um þessar mundir og mikil vakning á mikilvægi þeirra. Það hefur þó ekki verið neitt svakalegt úrval hérna heima en það er að aukast mikið núna.
Það er algjör mýta að lífrænar snyrtivörur séu eitthvað dýrari en aðrar snyrtivörur. Þarna ertu að borga fyrir gæði og lífrænar snyrtivörur endast miklu lengur en venjulegar snyrtivörur. Þú þarft einnig minna af þeim. Þetta er ákveðin fjárfesting sem þú gerir og hún mun svo sannarlega vera þess virði.
Lífrænar snyrtivörur eru þó ekki gullpassi á að varan sé örugg fyrir þig. Stundum eru vörur merktar sem lífrænar en innihalda aðeins nokkur lífræn innihaldsefni ásamt skaðlegum efnum sem við eigum að forðast. Snyrtivörur og innihald þeirra þurfa ekki að fá samþykki yfrvalda áður en þær fara í búðarhillurnar. Það sem meira er, þegar að snyrtivörurnar eru komnar í búðir þá hefur FDA ekki vald til að innkalla þær.
Merkingar snyrtivara
Þegar snyrtivörur eru titlaðar ’’náttúrulegar’’ og ’’lífrænar’’ hefur það í raun enga merkingu. Snyrtivöruframleiðendum er frjálst að merkja vöruna eins og þeir vilja. Sumar vörur geta innihaldið nokkur lífræn innihaldsefni en innihalda samt skaðleg efni en er samt merkt sem náttúruleg eða lífræn.
Snyrtivöruiðnaðurinn á mjög auðvelt með að blekkja neytandan og það sem verra er, komast upp með það:
-
- „For Professional Use Only“– Þessi frasi leyfir snyrtivörufyrirtækjum að fjarlægja eitt skaðlegt efni frá innihaldslýsingunni.
- „Hypoallergenic“– Engin prufun er nauðsynleg til þess að geta haldið því fram að vara sé ,,hypoallergenic“ allergy-free(ofnæmislaus), eða örugg fyrir viðkvæma húð. Snyrtivörufirtækjunum er ekki gert að sanna þessr yfirlýsingar sínar.
- Harmful Chemicals – Það þarf ekki að taka fram þau skaðleg efni sem eru í vörunni nema þau hafi verið sett þangað viljandi.
Hér getur þú flett upp snyrtivörum og séð hvort þær séu öruggar fyrir þig.
Ég hvet þig, lesandi góður, til að kynna þér eiturefni snyrtivara og skaðsemi þeirra. Lestu svo á snyrtivörurnar þínar og hentu því sem er þér skaðlegt. Farðu svo inn á lífræna og náttúrulega línu næst þegar þú verslar inn en vertu þó alltaf á varðbergi og lestu á innihaldslýsingarnar. Ég er svolítið stórtæk þegar kemur að svona aðgerðum, það er annaðhvort allt eða ekkert hjá mér. Þú getur að sjálfsögðu byrjað rólega að kaupa inn lífrænar snyrtivörur um leið og hinar klárast.
Ég vona að ég hafi vakið þig til umhugsunar, gangi þér vel!
No Comments