Hnetulausar súkkulaðibitakökur

Þessar smákökur eru algjört æði en ég hef gert þær alltof oft og klárað of hratt til að geta birt af þeim uppskrift. En þær björguðu mér alveg á meðgöngunni, í miðri fæðingu, í sængurlegunni og núna þegar ég er heima með lítið kríli í fanginu. Þær eru glútenlausar, innihalda ekki unna sætu og eru að sjálfsögðu vegan líka. Einnig eru þær hnetulausar. Ég er búin að liggja á þessari uppskrift lengi og er svo glöð að hafa loksins náð að mynda og skrifa til að deila með ykkur!

Súkkulaðibitasmákökur – hnetulausar

• 2 krukkur dökkt tahini frá Rapunzel
• 6 dl haframjöl
• 2 dl kókospálmasykur
• 4 msk chia fræ
• 4 msk kókosolía frá Rapunzel
• 2 tsk eplaedik frá Rapunzel
• 2 tsk matarsódi
• 2 dl vatn
• Gróft salt
• 1/2 tsk vanilluduft frá Rapunzel
• 2 plötur 90% súkkulaði frá Rapunzel

Allt sett í matvinnsluvél og svo sett með matskeið á bökunarplötu. Rúllað svo upp og klest niður í kökur. Mér finnst skemmtilegra að gera þetta margar stórar kökur sem ég pressa vel niður, en það er jólalegra að hafa þær minni svo ég gerði það núna. Bakað við 165 gráður á blæstri.

Ólíkt öðrum smákökum þá eru þessar mjög næringarríkar og fullkomnar til að eiga þegar maður þarf skjóta næringu án fyrirhafnar. Ég mæli ekki með að geyma þær í lokuðu íláti því þá verða þær mjúkar. Ég geymi þær í glerkrukku en hef hana opna við stofuhita eða þá geymi þær inni í ísskáp í skál þar. Kökurnar eru að sjálfsögðu bestar með ískaldri möndlumjólk eða heitu kakói.

Þessa uppskrift gerði ég með lífrænu og gæðamiklu hráefnunum frá Rapunzel í samstarfi við Innnes. En vörurnar eru áberandi bragðgóðar og gæðamiklar! Vörurnar fást m.a. í Nettó, Hagkaup, Fjarðarkaup og Melabúðinni.

You Might Also Like

No Comments

Leave a Reply