Flokkur

Andaðu

Andaðu

Það er aldrei of seint að vinna í sjálfum sér

Hér áður fyrr voru þeir sem sóttu sér sálfræðiaðstoð taldir alvarlega veikir andlega. Í dag er sem betur fer viðhorfið annað. Fólk er óhræddara við að leita sér aðstoðar hjá sálfræðingi eða þerapista. Fólk leitar sér t.d. aðstoðar vegna hjónabandserfiðleika, kvíða, þunglyndis, fjölskylduerfiðleika eða áfalla sem það hefur orðið fyrir í lífinu. Það er gríðarlega mikilvægt að vinna að rót vandans og bæla vandamálið ekki niður með lyfjum. Það þarf heldur alls ekki að vera neitt að angra mann til…

Lesa meira

Andaðu

10 leiðir til að takmarka Facebook notkun þína og öðlast betra líf.

Hefur þú tekið eftir því hvað samskiptavefurinn Facebook er ávanabindandi? Áttar þú þig á því hversum miklum tíma þú eyðir þarna inni? Værir þú til í að eyða tímanum í eitthvað annað? Hafa mannleg samskipti við annað fólk orðið erfiðari, eins og t.d. að hringja eitt símtal? Lætur Facebook þér líða vel með sjálfa/n þig? Berðu þig saman við aðra? Facebook er hálfgerður gerviheimur þar sem við birtum glansmynd af lífinu og skoðum hvort annað. Þetta veldur því að fólk…

Lesa meira

Andaðu

Mikilvægi þess að fylgja innsæinu og hlusta á líkamann

Þegar við fæðumst þá erum við 100% sönn; við vitum hver tilgangur okkar í lífinu er og hver við erum. Það vill því miður gerast með tímanum að samfélagið nái að móta okkur þannig að við lokum á innsæið og hættum að hlusta á það. Frá blautu barnsbeini hefur okkur verið sagt hvernig við eigum að haga okkur, hvernig okkur á að líða, hvernig við eigum að klæða okkur o. s. frv. Allir eiga að passa í sama form og…

Lesa meira

Andaðu

Hverjum er ekki sama hvað öðrum finnst?

Það er rosalega mikil útlitsdýrkun í samfélaginu í dag og fer hún sívaxandi. Samfélagsmiðlar ýta mikið undir þetta þar sem við birtum gjarnan lífið í algjörri glansmynd. Ósjálfrátt fer maður að bera sig saman við aðra og í leiðinni að rakka sjálfan sig niður. Fínpússaðar stórstjörnur eru oft fyrirmyndir unglinga og vilja þau vera jafn þvengmjó og glæsileg eins og stjörnurnar birtast í tónlistarmyndböndum, kvikmyndum og fjölmiðlum. Það er fljótt að komast í fréttirnar ef það hefur náðst mynd af stórstjörnu…

Lesa meira

Andaðu

Hugleiðsla

Systir mín sendi mér frábæra grein um hugleiðslu nú á dögunum sem ég þurfti sko aldeilis á að halda. Ég var svo dugleg að hugleiða á hverjum degi í fyrravor þegar ég var að læra undir inntökuprófið í læknisfræði og bjargaði það mér gjörsamlega frá því að glata geðheilsunni. Ósk, þerapistinn minn, ráðlagði mér að byrja að hugleiða því ég var svo kvíðin og með hrikalegan lærdómskvíða. Mér féllust oft hendur yfir öllu því sem ég ætlaði að læra yfir daginn…

Lesa meira

Andaðu

Elskar þú sjálfa/n þig?

Eins og ég hef talað um áður er ekki síður mikilvægt að vinna í andlegu hliðinni og þeirri líkamlegu. Vissir þú að líkamlegir kvillar geta minnkað og jafnvel horfið alveg einungis með því að taka til í höfðinu á sér og hugsa rétt? Nú er ég búin að vera í 1 og ½ ár í þerapíunni ,,Lærðu að elska sjálfa/n þig’’ hjá þerapistanum Guðbjörgu Ósk Friðriksdóttur. Ósk mun sennilega aldrei losna við mig því það er svo upplífgandi að tala við…

Lesa meira

Andaðu

Það sem þú þarft að sleppa takinu á fyrir nýja árið.

Það er mikilvægt að taka ekki hluti með sér inn í nýja árið sem hafa dregið þig niður á því liðna. Það er ýmislegt sem er mikilvægt að hafa í huga og gott er að gera árið upp áður en nýja árið kemur. Atriði sem gott er að hafa í huga eru t.d.: Hvað lærði ég á sjálfri mér á þessu ári? Hvað get ég gert betur á því næsta? Ef þú ert reið/ur út í einhverja manneskju er mikilvægt…

Lesa meira

Andaðu

Mín hlið á kvíða og þunglyndi

Það er mikið fagnaðarefni hvað það hefur orðin mikil vitundarvakning hvað andlega kvilla varðar í samfélaginu. Það á engin að þurfa að skammast sín fyrir að líða illa andlega enda er það alls ekkert til að skammast sín fyrir. Það á ekki að vera neitt feimnismál að vera kvíðin eða þunglyndur, ekki frekar en að vera fótbrotinn. Því fleiri sem koma fram og tjá sig um andleg veikindi, því færri skammast sín fyrir þau og þau verða minna feimnismál í samfélaginu.…

Lesa meira