Hugsaðu

Ert þú háð/ur dufti um orku?

Það er algengt að fólk sé búið að ákveða að það sé mikið vesen að borða holla fæðu og að það taki of mikinn tíma. Það gefur sér þ.a.l. ekki tíma í að sinna mataræðinu og verður sér úti um snögga orku sem gerir manni meiri ógagn heldur en gagn. Þegar maður ákveður að fæða sjálfan sig á skyndibita, örbylgjumat, gosi, sælgæti eða bara almennt unni og óhreinni fæðu, þá verður niðurstaðan oft sú að maður verður orkulaus, þreyttur og sljór. Þá verða orkudrykkir því miður oft fólki að bráð sem er mikið vandamál hér á landi. Ef þú borðar rusl þá mun þér líða eins og algjöru rusli, það er bara þannig. Að ætla að bæta upp fyrir orkusnautt og næringarlítið mataræði með orkudrykkjum bætir einungis olíu á eldinn. Þetta er ákveðin vítahringur sem margir eru fastir í og ég hef miklar áhyggjur af.

Það er mikill hraði í samfélaginu og mikið sem fólk ætlar sér á einum degi. Margir eru gríðarlega háðir orkudrykknum Amino Energy og drekka hann í gríð og erg. T.d. þegar það þarf orku í ræktinni, í vinnunni eða jafnvel bara til að halda sér vakandi yfir lærdómnum. Þegar þú skellir þessu dufti í glas verður það mjög ónáttúrulega skært á litinn og er svo sætt á bragðið að það nær engri átt.

Er það eðlilegt að vera háð/ur dufti um orku? Veistu nákvæmlega hvað er í þessu dufti?

Af hverju borðar þú ekki holla og næringaríka fæðu sem sér þér fyrir nægri orku yfir daginn?

Nú eru orkudrykkir seldir í venjulegum matvörubúðum og eru því algengilegir öllum. Fólk gerir að sjálfsögðu ráð fyrir því að ákveðið öryggiseftirlit sé með slíkum drykkjum og fæðubótarefnum. Sú er því miður ekki raunin. Það er alls ekki mikið eftirlit með orkudrykkjum og fara framleiðendurnir frjálsri hendi í merkingum á vörunni og staðhæfa ýmislegt um vöruna sem er hvorki satt né sannað. Þú ert því á algjörlega eigin ábyrgð þegar þú kaupir þér orkudrykki og neytir þeirra.

Það er ýmislegt í orkudrykkjum og fæðubótarefnum eins og t.d. Amino Energy sem við höfum ekki hugmynd um hvað er sem veldur ýmsum aukaverkunum og tryggir að fólk verði háð því. Ég fann mjög góða grein frá íslenskum skurðlækni þar sem hann skrifar um orkudrykki og þ.á.m. Amino Energy sem ég læt fylgja með hér.

tEREUy1vSfuSu8LzTop3_IMG_2538Það þýðir ekki að fara einhverjar skyndileiðir þegar kemur að mataræði og heilsu. Ef þú hefur ekki tíma fyrir heilsuna þína núna þá hefur hún ekki tíma fyrir þig seinna. Taktu meðvitaðar ákvarðanir þegar þú lætur eitthvað inn fyrir varir þínar og vertu gagnrýnn neytandi. Lestu á innihaldslýsingar og ekki kaupa eitthvað sem þú veist ekki hvað er í. Settu það í forgang að undirbúa holla og góða fæðu fyrir þig og þína allt árið um kring. Það tekur að sjálfsögðu meiri tíma en að fara í lúguna á KFC og kaupa eina fjölskyldumáltíð. En þú uppskerð eins og þú sáir, þú þarft að hafa fyrir hlutunum ef þú vilt lifa heilsusamlegu lífi. Þú munt fyrirbyggja heilsukvilla, sjúkdóma og upplifa gífurlega vellíðan bæði á líkama og sál.

Settu sjálfan þig og heilsuna þína í 1. sæti, það er svo þess virði.
-Anna Guðný

You Might Also Like

No Comments

Leave a Reply