Það er algengt að fólk sé búið að ákveða að það sé mikið vesen að borða holla fæðu og að það taki of mikinn tíma. Það gefur sér þ.a.l. ekki tíma í að sinna mataræðinu og verður sér úti um snögga orku sem gerir manni meiri ógagn heldur en gagn. Þegar maður ákveður að fæða sjálfan sig á skyndibita, örbylgjumat, gosi, sælgæti eða bara almennt unni og óhreinni fæðu, þá verður niðurstaðan oft sú að maður verður orkulaus, þreyttur og…
