Þetta er jólakakan í ár elsku hjarta. Hún hefur allt það sem góð jólakaka þarf, hún er sæt, bragðgóð en samt svo fersk einhvernveginn. Það allra besta er svo hvað manni líður vel af svona köku því hún inniheldur ekkert glúten, unna sætu og engar mjólkurvörur. Þetta er fullkomin kaka til að eiga í frystinum yfir jólahátíðina til að njóta með þeim sem kunna gott að meta.
Jólahrákaka
Botn
- 1 dl kasjúhnetur
- 1 dl brasilíuhnetur
- 1 dl kókosflögur
- 2 dl döðlur
- 1 msk kókosolía, látin bráðna fyrst
- 1 msk möndlusmjör
- Gróft salt
- Þú byrjar á að rista kasjúhnetur, brasilíuhnetur og kókosflögur við 150°C í ofni. Þegar þetta er orðið fallega ristað þá setur þú öll hráefni botnsins í matvinnsluvél og síðan þjappar þú botninum vel niður í form. Frosin lífræn hindber svo mulin yfir botninn. Ég kaupi þau í nettó eða krónunni.
Grunnlag
- 300 g kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 8 klst
- 2 dl feit kókosmjólk
- 1 dl kókosolía, bráðin
- 1 dl hlynsíróp
- 1 msk sítrónusafi
- 1/2 tsk vanilluduft
- gróft salt
- Öllu blandað vel saman í blandara þar til silkimjúkt.
- ATH! 2 dl af grunnlaginu sett til hliðar en rest hellt yfir botninn.
- Formið svo sett í frysti.
Karamella
- 1 krukka af döðlu & möndlusmjöri frá Rapunzel
- Gott að leyfa heitu vatni að renna á krukkuna til að karamellan bráðni. Henni svo hellt yfir kökuna þegar að grunnlagið hefur harðnað í frysti.
Súkkulaðikrem
- 2 dl af grunnlagi
- 1 dl kókosolía,
- 1/2 hlynsíróp
- 3/4 dl hrákakó
- gróft salt
- Láttu heitt vatn renna á kókosolíuna svo hún bráðni.
- Öllu hrært saman og svo sett jafnt yfir kökuna
Ég skreyti kökuna með súkkulaði sem ég bjó til sjálf en það innihélt 1 dl kakó, 1 dl kókosolíu og 1/2 dl hlynsíróp.
Kökuna geymir þú svo í frysti og nýtur hennar þegar þér hentar. Einnig er hægt að skera kökuna í sneiðar og frysta sneiðarnar í loftþéttu íláti. Þá getur þú gripið eina sneið úr frysti í einu. Gott er að leyfa kökunni að standa aðeins áður en þú nýtur hennar, svo hún þiðni aðeins.
N J Ó T T U <3
Þessi færsla er í samstarfi við Innnes en ég gæti ekki mælt meira með elsku Rapunzel vörumerkinu í bæði gæði og bragði. Þú finnur vörurnar í Nettó, Fjarðarkaup og Heilsuhúsinu









No Comments