Svona af því að jólin eru nýbúin þá verð ég aðeins að tala um gosdrykkju. Mig gjörsamlega svíður þegar ég sé foreldra gefa ungum börnum kók í tíma og ótíma og horfa svo á mann með svipnum —> ,,Æ það eru nú einu sinni jól“. Og hvað svo? Hvaða greiða eru foreldrar að gera börnunum? Er það af því að þau vilja sjálf fá sér kók þannig þau gjörsamlega verða að gefa börnunum líka af því þau nenna ekki að hlusta á væl. Svo kemur enn ein helgin, pizza er pöntuð, kók með og —> ,,Jæja ok þá þú mátt fá kók litla 2 ára barn“. Svona heldur þetta áfram því svo koma afmæli, grillveislur, fermingarveislur og jú einmitt enn ein helgin þar sem það er kók með matnum. Síðan hvenær er ekki hægt að segja ,,nei þú mátt ekki fá kók“. Ég er svo guðslifandi fegin að mamma var aldrei með kók á borðum. Það var helst að það var keypt kók á stórum hátíðisdögum og þá var ég ekkert vön að drekka það svo mér fannst það aldrei neitt sérstakt. En svo er það ekki bara börnin sem fólk verður að taka ábyrgð á, það verður líka að hugsa um sjálfan sig.
Hugsaðu um hvað þú ert að láta ofan í þig.

Mér þætti gaman að vita hvað við á litla Íslandi drekkum margra lítra af gosi yfir árið. Ég held að sú tala sé ansi há. Gosdrykkir eru sérstaklega hannaðir þannig að okkur þyrsti í meira. Þeir innihalda m.a. salt og sykur; saltið til að okkur þyrsti í meira og sykurinn til að við verðum örugglega háð vörunni.
Vissir þú að langbesta efnið til að hreinsa ryð er einmitt kók? Hvað er það að segja okkur?
Coca Cola er mjög nálægt rafgeymasýru í sýrustigi og þ.a.l. getur það oft hreinsað yfirborð betur en margar eitraðar hreinsivörur til heimilisnota. Coca Cola gefur sig út fyrir að vera alheims fyrirtæki til að sannfæra neytendur og heilar þjóðir að það sé umhverfisvænt fyrirtæki og leggur það einnig mikinn pening í það að markaðsetja sig fyrir börnum. Fyrirtækjið er í raun og veru tengt við mengun, vatnsskort og sjúkdóma. Fólk sem neytir gosdrykkja eins og t.d. Coca Cola eiga í 48% meiri hættu á að fá hjartaáfall og heilablóðfall, samanborið við fólk sem drekkkur ekki gos yfirleitt. Gosdrykkjaneysla er einnig tengd við lungna- og öndunarsjúkdóma, þ.á.m astma og langvinna lungnateppu. [1] Áður en þú færð þér eina dós af gosi næst skaltu íhuga eftirfarandi: ein dós af gosi inniheldur 10 tsk sykur, 150 kaloríur, 30-55mg koffín, og er hlaðið af gervimatarlitum og súlfíðum. Þar að auki er mesta uppsprettan af há-frúktósa sýrópi sem gert er úr maíssterkju í gosdrykkjum. Eftirfarandi eru aðal efnisþættir í einni dós af gosi:
- Fosfórsýra: Getur truflað getu líkamans til að nýta kalk, getur leitt til beinþynningar eða mýkingu tanna og beina.
- Sykur: Það er staðreynd að sykur hækkar insúlín sem að leiðir til hækkunar á blóðþrýstingi, háu kólesteróli, hjartasjúkdómi, sykursýki, þyngdaraukningu, ótímabærrar öldrunar og miklu fleiri neikvæðar aukaverkanir. Flestir gosdrykkir innihalda meira en 100% af RDA sykri.
- Aspartam: Þetta efni er notað í staðin fyrir sykur í diet gosdrykkjum. Það eru meira en 92 mismunandi aukaverkanir tengdir við inntöku aspartams m.a. heilaæxli, fæðingargalli, sykursýki, geðsveiflur og flogaveiki.
- Koffín: Drykkir sem innihalda koffín valda taugaspennu, svefnleysi, háum blóðþrýstingi, óreglulegum hjartslætti, hækkuðum styrk kólesteróls í blóði, eyðingu steinefna og vítamína, hnúðum í brjóstum, fæðingargalla, og ef til vill tegundir af krabbameini.
- Kranavatn: Kranavatn getur borið fjölda af efnum með sér og getur það verið mjög óhreint útí heimi. Kranavatn er helsta innihalsdefnið í gosdrykkjum.
Tölfræði um heilsuógnandi þætti gosdrykkja:
- Einn gosdrykkur á dag eykur líkur þínar á sykursýki um 85%.
- Gosdrykkjendur hafa hærri líkur á krabbameini.
- Það hefur verið sýnt fram á að gosdrykkir geta valdið DNA skemmdum. Natríumbensóat, rotvarnarefni sem finnst gjarnan í mörgum gosdrykkjum, hefur getu til þess að slökkva á mikilvægum hluta á DNA þínu. Þetta gæti að lokum leitt til sjúkdóma eins og skorpulifur og Parkinsons.[2]
Vatn er miklu betri kostur en kók, það er skref í rétta átt til að bæta heilsuna. Það besta sem þú getur gert til að takast á við heilsufarsvandamál sem þú eða börnin þín þjást af er að láta gosið hverfa alveg. Ef það eru engin heilsufarsvandamál er ekki síður mikilvægt að sniðganga gosið, þannig getur þú einmitt komið í veg fyrir sjúkdóma.
Til gamans þá leyfi ég þessi vídjói að fljóta með. Húsráð í boði mín gjöriði svo vel.
[1] http://www.realfarmacy.com/20-practical-uses-for-coca-cola-proof-that-coke-does-not-belong-in-the-human-body/
[2] http://articles.mercola.com/sites/articles/archive/2008/01/12/what-happens-to-your-body-within-an-hour-of-drinking-a-coke.aspx
Ást og friður
Anna Guðný






No Comments