Heilög stund fyrir þig eina þar sem að við fáum okkur saman heitt kakó/te, ég leiði þig í gegnum töfrandi hugleiðslu, þú deilir því sem að liggur þér á hjarta og ég gef þér einstaklingsmiðuð ráð til að hjálpa þér að sækja kraftinn sem að býr innra með þér. Einnig kíkjum við saman á spil til að fá ennþá dýpri innsýn inn í það sem að er í gangi hjá þér núna og það sem að er framundan.
En fyrst og fremst er aðal tilgangurinn með þessum tíma að heiðra þig og búa til fyrir þig fallega stund burt frá öllu áreiti þar sem að þú getur virkilega upplifað að þú sért séð, heyrð og að þú virkilega skiptir máli. Að hjálpa þér að sjá hversu mögnuð þú ert og hvernig þú getir nýtt þér betur fjársjóðinn sem að býr nú þegar innra með þér 🎉💫
Þessi stund er fyrir þig ef að þú:
- Vilt fá meiri skýrleika í líf þitt.
- Vilt skýr en einföld skref til að minnka álag í daglegu amstri.
- Vilt gera eitthvað fallegt fyrir sjálfa þig.
- Vilt hjálp við að setja sjálfa þig meira í 1. sætið.
- Ert á krossgötum og vantar að fá hjálp til að fara inn á við og sækja svörin um næstu skref.
- Vilt upplifa meira jafnvægi og hugarró.
- Vilt prufa eitthvað nýtt og nærandi.
Tíminn er 2,5 klst og kostar 33.000 kr ✨
Ef að þetta togar í þig, endilega sendu á mig línu á anna@heilsaogvellidan.com og ég finn tíma fyrir þig elsku gull.
Ég býð einnig upp á gjafabréf ef þig langar að gefa/þiggja svona upplifun í gjöf ✨