Andaðu

Það er aldrei of seint að vinna í sjálfum sér

Hér áður fyrr voru þeir sem sóttu sér sálfræðiaðstoð taldir alvarlega veikir andlega. Í dag er sem betur fer viðhorfið annað. Fólk er óhræddara við að leita sér aðstoðar hjá sálfræðingi eða þerapista. Fólk leitar sér t.d. aðstoðar vegna hjónabandserfiðleika, kvíða, þunglyndis, fjölskylduerfiðleika eða áfalla sem það hefur orðið fyrir í lífinu. Það er gríðarlega mikilvægt að vinna að rót vandans og bæla vandamálið ekki niður með lyfjum. Það þarf heldur alls ekki að vera neitt að angra mann til þess að maður ákveði að vinna í sjálfum sér. Þú getur einfaldlega bara verið á höttunum eftir meiri hamingju í lífinu til að geta fengið sem mest út úr lífinu og blómstrað á hverjum degi.

Veitir þú því bara eftirtekt þegar þér líður illa?

Okkur er ætlað að eiga hamingjusamt líf og líða sem best á hverjum einasta degi. Okkur er alls ekki ætlað að vera óhamingjusöm og líða illa. Veitir þú því bara eftirtekt þegar þér líður illa? Ferðu annars bara í gegnum lífið með því að líða allt í lagi? Veistu hvað það er að líða stórkostlega og gjörsamlega blómstra í lífinu? Best af öllu við það að vera hamingjusamur og blómstra í lífinu er að þú smitar fólkið í kringum þig. Alveg eins og þú kemur fólkinu í kringum þig í vont skap þegar þú ert neikvæð/ur og í vondu skapi. Ekki viltu vera neikvæð orkuuppspretta fyrir fólkið í kringum þig?

Til þess að öðlast hamingjusamt líf og blómstra á hverjum degi þarft þú að fara að líta á hlutina öðruvísi og sjá lífið í nýju ljósi. Ég náði því markmiði með því að fara í þerapíuna Lærðu að elska þig til Guðbjargar Óskar Friðriksdóttur fyrir tveimur árum, þá aðeins 20 ára gömul. Í þerapíunni gjörbreyttist líf mitt algjörlega til batnaðar. Fróðleikurinn og verkefnin sem voru lögð fyrir mig í þerapíunni hjálpuðu mér að breyta hugarfarinu mínu, hegðun minni og finna tilgang minn í lífinu. Ég lærði hver ég væri, fór að þora að vera meira ég og standa með mér í einu og öllu. Allt sem ég lærði í þerapíunni er mikilvægasta veganesti mitt í lífinu og hefði ég viljað læra það strax í leiksóla.

Ekki bíða eftir að þú verðir veik/ur

Ég er gríðarlega þakklát fyrir að hafa hafið þessa vinnu svona ung og geta endalaust bætt við hana í gegnum komandi ár. Það er mjög algengt að fólk byrji ekki að huga að andlega þættinum og vinna í sjálfum sér fyrr en það er komið með sjúkdóm eða aðra kvilla. Það er oft talað um það að sjúkdómar eigi oft uppsprettu sína í rangs hugsunarfars (biturleiki, reiði, ófyrirgefning og fl.) fólks og er því alveg jafn mikilvægt að vinna í sjálfum sér þegar maður fær sjúkdóm eins og að borða rétt. Ég t.d. fæ alveg jafn mikil líkamleg viðbrögð þegar eitthvað er að angra mig andlega eins og þegar ég borða unna og óhreina fæðu.

En af hverju að bíða þangað til þú færð sjúkdóm eða aðra kvilla? Afhverju ekki að hefja þessa vinnu strax í dag og geta gjörsamlega blómstrað í lífinu og getað hugsað allt á svo einfaldan og léttan hátt framvegis? Það er aldrei of seint að byrja að vinna í sjálfum sér og spyr það alls ekki um aldur né kyn. Staðreyndin er þó sú að því fyrr sem þú byrjar að vinna í sjálfum þér, því fyrr munt þú blómstra og eiga hamingjusamt líf. Þér mun líða stórkostlega í starfi, hugsa hlutina út frá sjálf-ri/um þér, verða kærleiksríkari, verða þakklátari fyrir fólkið í kringum þig, skilja fólkið í kringum þig, skilja hegðun fólks, gera hluti sem ÞIG langar til að gera, líta á lífið með öðru ljósi, þú munt þora og áður en þú veist af ert þú að upplifa draumalífið þitt.

Þörf á andlegum einkaþjálfara

Mjög kær manneskja í lífi mínu sá hversu mikið ég blómstraði eftir að hafa farið í gegnum þerapíuna Lærðu að elska þig og ákvað hún að skella sér líka. Í dag er hún sjálf farin að kenna þerapíuna Lærðu að elska þig og er undir nafninu Andlegur einkaþjálfari á Facebook. Hún skýrði svo frábærlega út þar, og verð ég að deila því með þér, að þegar við förum í ræktina þá snýst maður í hringi því maður veit ekkert hvar maður á að byrja og hvaða æfingar maður eigi að gera. Maður þarf þjálfara til að kenna manni á tækin og sýna manni æfingar. Um leið og þjálfarinn er farinn er maður góður við sjálfan sig og ekki eins harður í æfingunum og þegar hann er. Maður þarf einkaþjálfara til að koma manni í gegnum æfingarnar til að fá sem mest út úr þeim. Þetta er alveg eins þegar maður er að vinna í sjálfum sér, maður les bækur, reynir að vera jákvæður í lífinu en manni vantar leiðsögn. Þú ert ekki eins dugleg/ur að vinna í sjálfum þér og veist ekki hvar þú átt að byrja án leiðsagnar. Maður þarf alveg jafn mikinn einkaþjálfara þar og í ræktinni.

Nú er ég sjálf farin að kenna þerapíuna Lærðu að elska þig og getur þú haft samband við mig á anna@heilsaogvellidan.com til að bóka tíma og lesið þér betur til um þerapíuna hér. Ekki bíða þar til það er orðið of seint, byrjaðu strax í dag og taktu skref í rétta átt. Þó það sé ekki nema að lesa greinar, bækur eða horfa á myndir á sviði sjálfshjálpar. Þú munt ekki sjá eftir því. Þú komst ekki í þennan heim til að vinna, borða og sofa. Það er á hreinu.

Ást og friður,

Anna Guðný

You Might Also Like

No Comments

Leave a Reply